Athugasemd.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):
Virðulegi forseti. Ég ætla ásamt öðrum þingmönnum hér að taka þátt í þessari skoðun á fortíðinni vegna þess að ég tel að sú skoðun sé mjög mikilvæg. Forsætisráðherra talaði um að fólkið í landinu væri ekki að ræða um Íraksmálið. Það er sjálfsagt allur gangur á því hvort fólkið í landinu er að ræða um Íraksmálið en svo mikið er víst að fólkið í landinu er mjög andsnúið þeirri ákvörðun sem tekin var í Íraksmálinu. Sú skoðun fólksins í landinu haggast ekki. Það skiptir engu máli hversu oft þessir ráðamenn koma fram og ræða þetta mál, 80% fólksins í landinu eru andsnúin þessari ákvörðun og telur að hún hafi verið pólitískt og siðferðilega röng og það ætti forsætisráðherra nú að vita eftir að hafa rætt við fólkið í landinu eins og hann segir.
Ég lít ekki svo á að þessi umræða sé árás á forsætisráðherra. Það er rangt að halda því fram. Hér er verið að fjalla um hvernig menn standa að mjög mikilvægum pólitískum ákvörðunum sem fela í sér stefnubreytingu í utanríkismálum og það er sjálfsagt og eðlilegt að það sé rætt aftur og aftur. Það felast ekki í því persónulegar árásir á forsætisráðherrann, í því felst pólitísk gagnrýni og hún á að eiga sér stað á hinu háa Alþingi.
Af hverju varð stefnubreyting? Jú, vegna þess að eins og við vitum banna alþjóðalög einhliða beitingu vopnavalds og það er í andstöðu við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar er Bush-kenningin um að Bandaríkin hafi eitt ríkja rétt til fyrirbyggjandi árása á óvinaríki, þeir hafa tekið upp þá kenningu, og nú höfum við fylgt þeim að málum. Við ljáðum því pólitískan stuðning þegar ráðist var inn í Írak. Í því felst stefnubreytingin að við höfum ljáð máls á einhliða árás á ríki sem er í andstöðu við alþjóðalög og andstöðu við alþjóðastofnanir. Þetta er rof á þeirri sátt sem ríkt hefur um utanríkismál á Íslandi í 60 ár og þegar slíkt gerist á að sjálfsögðu að ræða það í utanríkismálanefnd.