Athugasemd.
Össur Skarphéðinsson (Sf):
Herra forseti. Eins og hér var kallað fram í af hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur þá er loksins verið að upplýsa þetta mál. Það er verið að draga með töngum hægt og hægt út úr hæstv. ríkisstjórn hvernig liggur í málinu. En af hverju er það þannig að hv. þingmenn stjórnarliðsins koma hingað og tala um að það sé allt upplýst í málinu? Ef þeir hafa ekkert að fela af hverju samþykkja þeir þá ekki í fyrsta lagi að aflétta trúnaði af fundargerðum utanríkismálanefndar og láta það koma fram t.d. hvað hæstv. utanríkisráðherra sagði á fundi utanríkismálanefndar 19. febrúar? Og af hverju samþykkja þeir ekki bara tillögu stjórnarandstöðunnar um að rannsaka öll tildrög þessa máls, rannsaka allar forsendur þessarar ákvörðunar sem þeir félagar, hæstv. núverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra tóku í slagtogi við þriðja mann sem var sendiherra Bandaríkjanna? Finnst mönnum ekkert óeðlilegt að á sama tíma og ríkisstjórnin er að ræða málefni Íraks á fundi í Stjórnarráðinu skuli sendiherra Bandaríkjanna vera handan við þilið? Finnst mönnum ekkert óeðlilegt að þegar hæstv. forsætisráðherra er búinn að taka ákvörðun um það með utanríkisráðherranum að Ísland eigi að styðja þessa innrás og búið að tilkynna það í gegnum einhvern tengilið, sendiherra Bandaríkjanna, þá skuli hann aftur hverfa til fundar við ríkisstjórnina og hann segir henni ekki frá þessari ákvörðun? Hver er skýringin á því? Getur skýringin verið sú að innan ríkisstjórnarinnar hafi verið menn sem hafi verið andstæðir þessu eins og hæstv. landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson? Hver er skýringin á því að ekki var lagt í að ræða þetta í þingflokknum? Getur hún falist í því að þrír þingmenn Framsóknarflokksins hafi ekki verið sammála þessu? Er skýringin sú að hæstv. ríkisstjórn hafði ekki þingmeirihluta fyrir þessu?