131. löggjafarþing — 72. fundur,  10. feb. 2005.

Athugasemd.

[13:56]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Herra forseti. Mér finnst ömurlegt til þess að vita að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar skuli ekki geta farið með rétt mál varla varðandi eitt einasta atriði. Það hefur komið skýrt fram að þessi ákvörðun var tekin eftir ríkisstjórnarfund. Það kemur fram í viðtalinu. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson virðist ekki vera læs. Hann man að vísu ekki það sem hann heyrði í gær, látum það nú vera, en ætlast til að ég muni allt fyrir tveimur árum. Það eru miklar kröfur sem hv. þingmaður gerir til annarra, hann mætti gera meiri kröfur til sjálfs sín.

Svo kemur hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og segir að hér hafi verið um stefnubreytingu að ræða. Það liggur alveg ljóst fyrir að því er varðar árásina á Júgóslavíu í sambandi við Kosovo að öryggisráðið samþykkti það ekki. Ég veit ekki betur og man ekki betur en að Samfylkingin styddi það. Það er kannski gleymska í mér. (Gripið fram í.) Það er allt annað mál. Það er kannski gleymska í mér en ég man ekki betur, en það er bara að koma betur og betur í ljós í þessu máli að það er gamla Alþýðubandalagið sem hefur náð yfirtökum í Samfylkingunni í utanríkismálum, Alþýðuflokkurinn er þar gersamlega horfinn. Það mátti treysta því nokkurn veginn áður fyrr að Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn stæðu saman í öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar, stóðu saman um samstarfið við Bandaríkin. (Gripið fram í.) En nú er Alþýðubandalagið komið til valda í Samfylkingunni og þá er allt breytt og það er mjög mikilvægt (Gripið fram í.) að það hefur komið skýrt fram í þessari umræðu undanfarið og þá vita menn hvar þeir hafa Samfylkinguna í öryggis- og varnarmálum.