Verðbréfaviðskipti.
Pétur H. Blöndal (S):
Herra forseti. Við ræðum hér afskaplega viðamikið og mikilvægt frumvarp sem ég býst við að hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni fjalla ítarlega um.
Mig langar í þessu sambandi rétt aðeins að geta þess að í viðskiptum gildir ein mjög einföld regla: Gagnkvæmt traust. Ég var eitt sinn í viðskiptum og þá skipti ég fólki almennt í tvo hópa: Fólk sem ég treysti og fólk sem ég ekki treysti. Við seinni hópinn átti ég helst ekki viðskipti. Það var afskaplega einfalt og þurfti engar reglur til. Það er nefnilega alrangt sem menn halda fram að í viðskiptum sé óheiðarleiki í gangi. Viðskipti byggja á heiðarleika, trausti og sanngirni og reglur koma ekki í veg fyrir að lygarar ljúgi. Mín reynsla er sú að fólkið sem lýgur mest talar mest um að það ljúgi ekki og segir alltaf: Þetta er alveg satt.
Mig langar til að ræða um annað og það er vandinn við að skilgreina hverjir eru tengdir. Í frumvarpinu er fjallað um börn og maka og allt slíkt. En það er ekki endilega fólkið sem tengist. Nei, nei. Það er fólkið á golfvellinum. Það er fólkið í sundinu. Það er fólkið í hlaupahópnum eða bara viðskiptavinir sem hafa tengst í gegnum mörg viðskipti og treysta hver öðrum í gegnum þykkt og þunnt og hvergi er hægt að sjá nein tengsl á milli með eðlilegum hætti. Þess vegna er tilraunin mjög veikburða sem gerð er í frumvarpinu til að tengja saman fólk.
Ég má til með að tala um gagnkvæmt eignarhald sem er töluvert mikill vandi eða krosseignarhald. Í því sambandi vil ég nefna eftirfarandi:
Tvö hlutafélög, A. hf. og B. hf., eru hvort tveggja með 10 millj. kr. hlutafé. Nú leggur stjórn A hf. til að auka hlutaféð um 90 millj. til að kaupa í B hf. sem þeir vita að er að auka hlutaféð. Það gera þeir. Sama gerir B hf. Hlutafélögin kaupa hvort í öðru fyrir 90 millj. Það fer sem sagt engin króna á milli. Hvað gerist eftir breytinguna? Stjórn A hf. ræður B hf. gjörsamlega og stjórn B hf. ræður A hf. gjörsamlega. Upprunalegir hluthafar ráða engu. Ef það er nægilegt eigið fé í fyrirtækjunum geta þeir meira að segja krafist innlausnar á 10% sem eftir eru. Þá á enginn fyrirtækin. Þau eiga hvort annað og enginn annar á þau.
Þetta vandamál er mikið vandamál víða um heim og kannski sérstaklega í Japan og Þýskalandi og víðar og gerir það að verkum að upprunalegir hluthafar hafa ekki áhrif. Á þessum þurfum við að taka. Við þurfum að finna lausn á þessu. Ein lausnin er sú að stofnað yrði eða búið til með lögum nýtt form á hlutafélögum sem heitir HFU, upplýst fyrirtæki, og þar skyldu allir hluthafar sem eru hlutafélög upplýsa um eigendur sína, ella hafi þeir hvorki atkvæðisrétt né njóti arðs. Þetta er ákveðin kvöð en hluthafi í slíkum félögum gæti treyst því hverjir eiga þau og fái fullkomnar upplýsingar um það hverjir eiga þau. Ég vil að menn skoði þessa leið því ég tel að gagnkvæmt eignarhald sé mjög mikið vandamál. Líka gagnvart skatti.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri, en ég reikna með að hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni fjalla mjög ítarlega um þetta mál. Ég tek undir það sem hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson sagði í andsvari áðan að það þarf að skoða hvort eigi að birta úrskurði Fjármálaeftirlitsins, það sé skylda, nema alveg sérstaklega standi á. Menn geta skoðað kosti og galla þess.