Rekstur Ríkisútvarpsins.
Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég hnaut um eitt atriði í merkilegri ræðu hv. þingmanns og það var þar sem hann sagði að Ríkisútvarpið væri eign okkar allra. Ég vil mótmæla því. Ríkisútvarpið er eign ríkisins. Ríkið er ekki við öll. Það uppgötvum við fyrst og síðast þegar við borgum skattana til ríkisins að peningarnir eru ekki lengur í okkar eigu, heldur fara þeir í eigu ríkisins sem er ákveðin stofnun í þjóðfélaginu og langt í frá að vera sama og eign einstaklinga. Ég get líka nefnt sem dæmi að ég get ekki sest upp í ríkisbifreið og ekið henni á brott, ég yrði bara tekinn fyrir þjófnað.