Rekstur Ríkisútvarpsins.
Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er nákvæmlega það sem hæstv. ráðherra gerir þegar hún kemur fram með frumvarpið, þá kemur skýrt fram hvaða breytingar verið er að leggja til í viðkomandi frumvarpi. Ég skil ekki alveg þessa umræðu, en ég met það svo að hv. þingmenn séu ekki að gagnrýna ráðherrann fyrir að hafa lýst því yfir að frumvarp væri væntanlegt og að það væru nokkrar leiðir sem kæmu til greina sem menn væru að skoða. Ég trúi ekki að það sé eitthvað til að gagnrýna. Ég gat ekki heyrt það á hv. þingmanni að svo væri. Hins vegar gagnrýndi hv. þingmaður að hér væri um pukur að ræða sökum þess að menn væru með nefnd til að leggja málið fram og gagnrýndi að það hefðu verið skelfileg vinnubrögð hjá hæstv. ráðherra að halda skýrslu í níu daga áður en hún var gerð opinber.
Ég verð að segja eins og er, hæstv. forseti, að ég hefði viljað sjá samflokksmenn hv. þingmanns hérna hinum megin við Vonarstrætið koma fram með skýrslur um opinber fyrirtæki en þar er allt lok og læs þegar kemur að ákveðnum málum Þannig hagar Samfylkingin sér þegar sá flokkur er við völd. En það tengist þessu máli ekki beint. Mér finnst sjálfsagt að fara yfir þetta mál frá öllum hliðum en ég held að það sé ekki nokkur leið að finna einhvern flöt á því, enda er það orðið slæmt ef ráðherrar mega ekki segja frá því í viðtölum að frumvarp frá þeim sé á leiðinni og þar komi nokkrir hlutir til greina sem menn séu að fara yfir. Ef það er orðið gagnrýnisvert, þá er mjög vandlifað í þessu landi. Það liggur fyrir að þegar frumvarpið verður lagt fram þá fer það í lýðræðislega umræðu, ekki bara hér heldur alls staðar í þjóðfélaginu.