Rekstur Ríkisútvarpsins.
Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):
Herra forseti. Í þessari umræðu rifjast upp fyrir manni margt í umræðunni sem hér fór fram síðastliðið vor og fram á sumar. Ljóst er að margt brennur enn á mönnum úr þeirri umræðu. Verður að segjast eins og er að hæstv. menntamálaráðherra hefur komið hreyfingu á þær hugsanir sem fóru hér um sali og þær ræður sem hér voru fluttar af miklum eldmóð í þeirri deilu sem þá stóð. Það er því alveg ljóst að hér er enn mikil þörf fyrir að ræða málefni þessara miðla, Ríkisútvarpsins og svo landslagið allt, markaðsstöðvarnar og það sem þeim tilheyrir.
Það er náttúrlega staðreynd að heimur fjölmiðlanna breytist geysilega hratt. Áhrif þeirra á almennt líf borgaranna er alltaf að verða meira og meira og við eigum eftir að sjá enn frekari breytingar í þeim efnum. Í dag er ekki eins einfalt að draga línu á milli dagblaðs og sjónvarpsstöðvar og var síðastliðið vor þegar við fjölluðum um sömu mál. Nú er komið í gagnið gagnvirkt sjónvarp þar sem sjónvarpið er nánast orðið eins og tölva og sveitarstjórnir eru jafnvel farnar að koma sér upp kerfi sem gerir það verkum að borgararnir geta talað beint við þjónustukerfi sveitarfélagsins í gegnum sjónvarpið. Hér eru því gífurlega miklar breytingar í vændum, að ekki sé talað um þær hræringar sem eru á gagnaflutningamarkaði. Ekki þarf annað en vitna til umræðu síðustu daga, í átök milli Símans og Orkuveitu Reykjavíkur varðandi gagnaflutninga, umræður um aðskilnað dreifiveitna annars vegar og efnisveitna hins vegar. Allt er þetta verulega spennandi umræða og efni sem alþingismenn eiga auðvitað að láta til sín taka. Ég treysti því að það veitist svigrúm fyrir þá umræðu þegar þar að kemur. Þegar fjölmiðlanefnd hefur skilað af sér, þegar hulduhópur menntamálaráðherra, hvort sem það er nefnd eða starfshópur sem að okkar bestu vitund á að vera að semja frumvarp um Ríkisútvarpið, skilar af sér þá held ég að meginskilyrðið hljóti að vera það að þau gögn sem koma frá þessum aðilum fái að anda og um þau verði umræða.
Við söknuðum þess auðvitað hér á síðasta vori þegar skýrsla útvarpsnefndar menntamálaráðherra var lögð fram því þá var hún kyrrsett í forsætisráðuneytinu til þess að hægt væri að semja frumvarp og senda út í umræðuna með skýrslunni, frumvarp sem átti svo ekkert skylt við innihald skýrslunnar, því að menn muna á hvern hátt skýrsla menntamálaráðherra fjallaði t.d. um Ríkisútvarpið, en ekki kom frumvarp forsætisráðherra nokkurn skapaðan hlut inn á það og helst mátti ekki ræða hlutverk Ríkisútvarpsins í þeirri umræðu sem fram fór hér í lok síðasta þings.
Öll þessi umræða er af hinu góða. Það er vissulega mjög miður þegar henni er hleypt af stokkunum á þeim nótum sem hæstv. menntamálaráðherra gerir í viðtali um helgina. Það verður erfiðara fyrir okkur að fóta okkur í henni, við vitum í raun ekki um hvað hæstv. menntamálaráðherra er að tala. Hér er talað um véfrétt og völuspá og það er alveg rétt. Þetta er allt í véfréttar- og völuspárstíl sem frá hæstv. ráðherra kemur, það er það sem kannski ergir okkur sem höfum verið virk í þessari umræðu hingað til.
Hvað varðar þá tillögu sem liggur á borðum okkar og er tilefni umræðunnar nú, þ.e. tillögu til þingsályktunar frá hv. þingmönnum Frjálslynda flokksins, kom ég því ekki að í fyrri ræðu minni svo nokkru næmi á hvaða hátt ég væri samþykk meginsjónarmiðum þeirrar tillögu og að hvaða leyti ekki. Segja má að mörg sjónarmið mín séu komin fram í máli hv. þm. Ögmundar Jónassonar. Um þetta er að segja að ég er þeirrar skoðunar að afnotagjöldin séu nauðsynleg að mörgu leyti fyrir bæði Ríkisútvarpið og almenning. Ég held að það að viðhalda beinni tengingu á milli almennings og Ríkisútvarpsins sé af hinu góða. Á þann hátt finnur almenningur að hann á útvarpið, útvarpið tilheyrir honum. Ég held að þarna séu verulega þýðingarmikil tengsl á milli þjóðarinnar sem á þjóðarútvarpið og stofnunarinnar sjálfrar. Ég geld varhuga við því að þau tengsl séu rofin. Þau yrðu rofin ef Ríkisútvarpið yrði sett á fjárlög. Þar með yrðu auknir möguleikar ríkisstjórnarinnar á að — hvað eigum við að segja — fara þannig með fjárveitingarnar hér að hægt væri að halda Ríkisútvarpinu í spennitreyju fjárveitingavaldsins. Ég tel því að við séum að forða Ríkisútvarpinu frá enn meiri íhlutun ríkisstjórnarinnar ef við viðhöldum afnotagjöldunum.
Ég held líka að grunnprinsippin í almannaútvarpi rími mjög vel við þau tengsl sem ég tel að þurfi að vera á milli borgaranna og stofnunarinnar. Hingað til hafa skoðanakannanir sýnt að almenningur ber gífurlega mikið traust til Ríkisútvarpsins. Hann er ekki alltaf ánægður með dagskrárstefnuna eða það sem kemur í sjónvarpi, hann er ekki alltaf ánægður með valið á bíómyndunum. En í grundvallaratriðum er Ríkisútvarpið stofnun sem nýtur trausts borgaranna.
Ég hef á tilfinningunni að það sé að hluta til vegna þess að almenningur ætlast til að hann fái óvilhallan fréttaflutning, „forum“ eða vettvang fyrir lýðræðislega umfjöllun um þjóðmálin í stofnun sem almenningur telur sig eiga. Þess vegna rökstyð ég þessi sjónarmið mín varðandi afnotagjöldin.
Ég er hins vegar alveg fús til að viðurkenna að innheimtuformið eða hvernig þessi gjöld eru innheimt og lögð á, sé kannski úrelt og þurfi endurskoðunar við. Þess vegna hef ég verið talsmaður þess að skoða möguleikann á að fella afnotagjöldin inn í fasteignagjöldin og innheimta þau á þann sama hátt og fasteignagjöld eru innheimt, eins og t.d. holræsagjald og sorphirðugjald og hvað það er sem í þeirri innheimtu er fólgið. Á þann hátt fær almenningur áfram á tilfinninguna að hann sé sjálfur að greiða hluta af tekjum sínum inn í þessa almannastofnun.
Ég er sama sinnis og hv. þm. Ögmundur Jónasson varðandi auglýsingarnar. Ég sé ekki á hvern hátt við getum afnumið þær eða fellt þær niður í Ríkisútvarpinu nema þá, jú, reyndar er hv. þm. Mörður Árnason búinn að lýsa því að hann sjái það fyrir sér í mjög rólegum skrefum, nefnir mögulega tíu til fimmtán ár. Það má kannski sjá það fyrir sér að hægt sé að útfæra eitthvert þannig kerfi. En ég er ansi hrædd um að það verði erfitt að gera þennan greinarmun á tilkynningum frá opinberum aðilum, félagasamtökum og sambærilegum aðilum og svo aftur hinum sem vilja auglýsa vörur sem eru til sölu. Ég held að við værum með þeirri hugmynd sem er útlistuð í tillögunni sem við hér ræðum að sigla inn í óþörf átök um þetta mál og tel þess vegna að Ríkisútvarpið eigi að fá að halda áfram að hafa auglýsingar, enda eru þær í sjálfu sér líka sjálfsögð þjónusta við neytendur.