131. löggjafarþing — 73. fundur,  14. feb. 2005.

Stjórnarskipunarlög.

50. mál
[19:03]

Flm. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég þakka umræðuna um frumvarpið. Hér hefur nokkuð verið rætt um að það sé lagt fram til sýningar, eins og kallað er, þ.e. lagt fram til að skapa umræðu um efnið. Það er gert til þess að ekki komi fram frumvarp sem menn geti haldið fram að hafi aldrei verið rætt og eigi að samþykkja á stuttum tíma.

Nokkur umræða spannst hér um að aldrei sé hægt að búa til texta þannig að ekki megi túlka hann á mismunandi vegu. Það má vel vera að lögfræðingar haldi það en venjulegt fólk skilur einfaldan, venjulegan texta. Ef t.d. stendur: „Enga manneskju má drepa“, þá er það eitthvað sem allir mundu skilja nákvæmlega. Ef einhver mundi segja hins vegar: „Rétturinn á lífið er heilagur“, þá er það eitthvað sem margir mundu ekki skilja eins vel, þannig að það er ekki alveg sama, frú forseti, hvernig stjórnarskráin er orðuð eða hvernig lög eru yfirleitt orðuð. Hægt að orða þau einfalt og skilvirkt en einnig er hægt að orða þau loðið. Ég bendi í þessu sambandi á boðorðin tíu, þau eru orðuð þannig að velflestir, held ég, skilja þau nokkurn veginn einum skilningi, enda hafa þau haldið mjög lengi.

Varðandi það að vald forseta lýðveldisins sé fært yfir á forseta Alþingis, sem er kjörinn af stjórnmálaflokkum, hygg ég að héðan í frá, ef það er réttur skilningur að forseti hafi virkilega málskotsrétt, hann sé hluti af löggjafarvaldinu, muni forsetar lýðveldisins verða kosnir pólitískri kosningu, vegna þess að það fer að skipta verulegu máli í allri pólitík hvernig forseti lýðveldisins stendur í pólitíkinni og hann verður ekki lengur það sameiningartákn eins og hann hefur verið hingað til, hlutlaus eins og hann hefur verið í pólitísku amstri og umræðu. Það er breytingin sem varð síðasta sumar, þ.e. sú ákvörðun sem forseti lýðveldisins tók með því að hafna lögum frá Alþingi, lögum sem Alþingi hafði samþykkt. Við það breyttist að sjálfsögðu þetta embætti.

Ég vil taka fram aftur að í frumvarpinu er málskotsréttinum breytt yfir í málskotsrétt þjóðarinnar. 25% þjóðarinnar geta krafist þess að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla og þá er það komið í hendur þjóðarinnar að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu.

Að öðru leyti þakka ég umræðuna og býst við því og vona að fram fari lífleg umræða um þetta mál í þjóðfélaginu og nefndinni sem fær málið til skoðunar og umræðu því að ég tel að þetta sé ekki bara þoka, eins og hv. þm. Lúðvík Bergvinsson kallaði það, eða innihaldslaus umræða. Þó að ræða mín kunni kannski að hafa verið innihaldslaus að hans mati er þetta málefni sem ég held að margir gætu rætt með töluverðu innihaldi.