Vöxtur og viðgangur þorsks í Breiðafirði.
Kristinn H. Gunnarsson (F):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að taka upp þetta mál og hreyfa því í þingsölum. Mér finnst það allt í heild sinni kenna okkur ákveðna lexíu sem við ættum að reyna að læra dálítið af til framtíðar litið. Það eru einkum þrjú atriði sem ég vil nefna í því sambandi.
Í fyrsta lagi tel ég að vanda þurfi vel þær rannsóknir sem gerðar eru áður en tekin er ákvörðun um lokun svæða með svo afdrifaríkum hætti sem var í Breiðafirðinum fyrir síðustu áramót og áður fyrir Vestfjörðum, í fyrra eða hittiðfyrra. Það kom greinilega fram á fundinum í Ólafsvík að undirbúningi málsins var áfátt, rannsóknir voru ekki nægjanlega víðtækar til að byggja svona viðamikla ákvörðun á.
Í öðru lagi held ég að menn eigi að leggja sig fram um það að stuðla að frekari þróun veiðarfærastýringar til þess að komast hjá því að veiða smáfisk í þeim mæli sem óæskilegt er. Það eru ýmsir möguleikar til í þeim efnum umfram það sem menn hafa lagt sig fram um hingað til. Það er hægt að þróa beitu, lögun veiðarfæra og gerð þeirra á þann hátt að aflinn hafi aðra stærðarsamsetningu en ella væri.
Í þriðja lagi tel ég að við eigum að læra það af þessu máli að það þurfi að taka ríkara tillit til atvinnulegra hagsmuna en gert hefur verið. Til þessa hefur eingöngu verið litið á þá hagsmuni sem lúta að hagkvæmri nýtingu nytjastofna, veiðar sem skaðlegar geta verið með tilliti til hagkvæmrar nýtingar nytjastofna. Það eitt er ekki nægjanlegt að mínu mati, herra forseti, (Forseti hringir.) og menn eiga líka að líta til hagsmuna atvinnuvegarins.