Vöxtur og viðgangur þorsks í Breiðafirði.
Jón Bjarnason (Vg):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að taka þetta mál hér til umræðu. Það er eiginlega í megindráttum tvíþætt. Í fyrsta lagi snýr það að vinnubrögðum Hafrannsóknastofnunar og sjávarútvegsráðuneytisins við beitingu á þeim aðgerðum að loka svæðum fyrir veiðum, með hvaða hætti það er gert og á hvaða forsendum.
Þegar um er að ræða eins og í þessu tilviki í Breiðafirði þar sem stór hluti atvinnulífsins á allt sitt undir þessum veiðum hlýtur það að vera alveg lágmark í samskiptum að þessar aðgerðir séu unnar og framkvæmdar í nánu samráði við heimafólk, við þá sem stunda þennan atvinnuveg, að lokunin sé ekki bara tilkynnt í útvarpi eða á vefmiðli með nokkurra klukkustunda fyrirvara. Slík vinnubrögð eru alveg ótæk.
Í öðru lagi snýst þetta um rannsóknaraðferðir og vísindalegt mat á líffræðilegri stöðu þorskstofnsins í Breiðafirði. Þar eru misvísandi rannsóknarniðurstöður um hana. Þetta þarf í sjálfu sér þá að athuga nánar.
Eitt er ljóst, það eru mismunandi stofnar við landið og stofninn við Breiðafjörð getur haft eitthvert annað vaxtarmunstur, getur þurft aðra stýringu við veiðar og þá eru reglur kvótakerfisins við að stýra veiðinni í slíkan fisk gjörsamlega ónothæfar. Það er ekki jafngilt tonn í þessum litla fiski, 55–60 sentímetra löngum, og í stórfiski þannig að þetta mál þarf að skoða einmitt líka frá (Forseti hringir.) þessum hliðum, herra forseti.