Vöxtur og viðgangur þorsks í Breiðafirði.
Sigurjón Þórðarson (Fl):
Herra forseti. Það er ekki rétt sem kom fram hjá hæstv. sjávarútvegsráðherra að ég sé á móti mælingum. Ég vil taka það fram að það sem hæstv. sjávarútvegsráðherra hafði rétt fyrir sér um var að með mismunandi sýnatöku fær maður náttúrlega mismunandi útkomu á því sem verið er að mæla. Það er enginn að bera á móti því.
Ef maður skoðar gögn Hafró sýna staðreyndirnar að fjórðungur fiska — þetta eru gögn Hafrannsóknastofnunar — fimm ára og eldri er hægvaxta gamall fiskur. Þetta er samkvæmt skilgreiningu Hafró og ef þessi fiskur hefði verið mældur mánuði seinna hefði hann verið mældur sex ára og þá hefðum við fengið helming. Þetta er út frá gögnum Hafró. Þetta eru bara staðreyndir málsins.
Hæstv. ráðherra gagnrýndi mjög Jón Kristjánsson. Auðvitað má gagnrýna alla, en hvers vegna lítur hann ekki á stofnun sína og veitir einhverja athygli? Er allt þar hafið yfir gagnrýni? Ég held ekki. Er ekki rétt að kanna kynþroska þegar verið er að athuga hvort loka eigi svæðum? Ég hefði talið það. Það væri fróðlegt að fá að heyra hjá hæstv. ráðherra hvort eitthvað mælti á móti því og hvort það væri ekki einmitt eðlilegt. Er ekki rétt að vigta fiskinn? Finnst honum það ekki ef það er verið að kanna vöxt og viðgang hans?
Í þriðja lagi: Er ekki rétt að athuga aldur fisksins? Ég hefði talið það þegar verið er að loka svæðum. Mér finnst í rauninni einnig vera kurteisi við mig og aðra þingmenn sem koma í umræðuna að hæstv. sjávarútvegsráðherra svari þeim spurningum sem eru bornar upp en gagnrýni ekki bara vísindamenn sem hafa gert sitt besta og sem eru þó svo sannarlega ekki hafnir yfir gagnrýni. Ég er ekki að segja það. En ég gagnrýni það að hann horfi síðan algerlega gagnrýnislaust á gögn Hafró sem eru mjög gagnrýnisverð. Það er enginn vafi á því.