Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Það er beinlínis spaugilegt að hlusta á þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, tala hér um þinglega meðferð á málum, gildi umræðunnar og að mál hafi verið afgreidd í nefndum og rædd þar í þaula þegar hann kemur upp í ræðustól til að verja hæstv. menntamálaráðherra, hinn sama ráðherra og boðaði það í Morgunblaðinu núna um helgina að lögum um Ríkisútvarpið yrði gjörbreytt. Hún talaði nánast eins og það væri búið að gera það og að hún, hæstv. ráðherra, þyrfti í raun og veru ekkert að bera það mál undir þingið eða það væri þá a.m.k. formsatriði.
Nóg um það, virðulegi forseti. Við í þingflokki Frjálslynda flokksins styðjum að sjálfsögðu þá eðlilegu kröfu að hæstv. menntamálaráðherra sé við 2. umr. í þessu mikilvæga máli. (Gripið fram í.) Hér er verið að taka grundvallarafstöðu. Málið þarfnast umræðu og það er sjálfsögð krafa að hæstv. menntamálaráðherra sé hér til staðar. Ég minni á það, virðulegi forseti, að á miðvikudaginn í síðustu viku var munnleg fyrirspurn frá hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur einmitt um þetta mál og þar kom ýmislegt mjög áhugavert í ljós hjá hæstv. menntamálaráðherra, atriði sem ég hygg að hún ein geti svarað. Í máli hennar kom fram að hún hefði verið að skoða þessa hluti, það sagði hún. Hún var m.a. sammála mér í því að mat á eignum Tækniháskólans við þennan samruna væri ótrúlega lágt. Eignir skólans eru metnar á tæpar 100 millj. kr., það er allt og sumt. Þetta er Tækniháskóli Íslands.
Ég kallaði eftir eignaskrá. Það væri fróðlegt að fá að sjá hana, hvaða eignaskrá lægi á bak við eignamatið. Það hefði kannski verið gaman að sjá hæstv. menntamálaráðherra mæta í dag og upplýsa okkur m.a. nánar um þetta atriði málsins. Því miður virðist sú ekki verða raunin og ég efast stórlega um að hæstv. umhverfisráðherra Sigríður A. Þórðardóttir geti svarað spurningum um atriði eins og þetta.
Ég vil svo að lokum, virðulegi forseti, vekja athygli á því að í raun og veru er það til vansa hér í þinginu hversu mikið léttlyndi stjórnarliðar sýna þegar umræður fara hér fram. Rétt áðan fór fram umræða utan dagskrár um vöxt og viðgang þorsksins í Breiðafirði. Maður skyldi hafa ætlað að a.m.k. nefndarmenn í sjávarútvegsnefnd hefðu sýnt sóma sinn í að vera við umræðurnar. Þeir sátu hér við atkvæðagreiðslur nokkrum mínútum áður en um leið og þessi umræða hófst hurfu allir stjórnarliðar í sjávarútvegsnefnd nema formaðurinn, hv. þm. Guðjón Hjörleifsson. Þeir hurfu allir úr salnum og sáu ekki sóma sinn í að taka þátt í þessari umræðu þrátt fyrir þá staðreynd að sjávarútvegsnefnd hafði fengið sérfræðinga í þessum málum á sinn fund til að upplýsa þingmenn í nefndinni um þau mál sem voru hér til umræðu.
Það gengur bara ekki að einu tækifærin sem stjórnarandstæðingar fá til að tala um þingmál eða mál hér í þinginu við stjórnarliða séu hreinlega með þeim aðferðum að við þurfum nánast að svæla þá út í hvert einasta sinn. Af hverju geta þessir menn ekki verið hér eins og aðrir þingmenn?