131. löggjafarþing — 74. fundur,  15. feb. 2005.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[15:03]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil minna hv. þingmenn á að beina orðum sínum til forseta. Hv. 5. þm. Norðaust. og hv. 4. þm. Norðvest., (Gripið fram í.) jafnvel þótt þeir grípi fram í hvor fyrir öðrum, ber að beina orðum sínum til hæstv. forseta.

Ég vil ítreka það sem ég áður sagði. Hér er staðgengill menntamálaráðherra mætt. Ég óskaði sérstaklega eftir því að hún yrði hér við umræður og vona ég og raunar veit að hún getur leyst úr þeim spurningum sem hv. þingmenn vilja beina til hennar.