131. löggjafarþing — 74. fundur,  15. feb. 2005.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[15:33]

Einar Már Sigurðarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er óhjákvæmilegt að endurtaka nokkrar spurningar frá 1. umr. um þetta mál, vegna þess að þá gerðist það að hæstv. menntamálaráðherra hafði ekki svör á reiðum höndum varðandi ýmislegt sem hér er fjallað um. Á ég þar sérstaklega við rekstrarform þeirrar stofnunar sem hér er rætt hvað mest um.

Það er athyglisvert að í nefndaráliti meiri hluta menntamálanefndar er tekið undir þau sjónarmið sem koma fram í svörum sem send hafa verið til nefndarinnar varðandi hlutafélagaformið. Það verður að segjast eins og er, frú forseti, að þar eru nær engin rök fyrir því að þetta form er valið. Það er því nauðsynlegt að hv. þm. Gunnar Birgisson, formaður nefndarinnar, skýri það hvernig á því stendur að hlutafélagaformið er valið fram yfir sjálfseignarstofnunarformið. Það liggur ljóst fyrir að Háskólinn í Reykjavík hefur verið rekinn með því formi. Ekki var kunnugt um að þar væri nokkur vandi. Það kemur hins vegar fram í svörum að þar sé einhver vandi, hann er ótilgreindur, þannig að svörin eru enn jafnóljós. Því er nauðsynlegt að hv. þingmaður upplýsi það nú strax við upphaf umræðunnar hvernig á því standi að þetta rekstrarform var valið fram yfir sjálfseignarstofnunarformið.