131. löggjafarþing — 74. fundur,  15. feb. 2005.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[15:42]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Ég kom upp til að leiðrétta það að ég hafi stutt nefndarálitið. Það er rétt að það komi fram að það hefur orðið misskilningur vegna þess að það kom fram á síðasta fundi menntamálanefndar að ég hafi verið jákvæður í garð frumvarpsins en óskað eftir að fá að sjá endanlega gerð nefndarálitsins. Ég fékk það ekki í hendur, þannig að ég óskaði þá eftir að nafn mitt væri tekið af stuðningi við það.