Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.
Frsm. 1. minni hluta menntmn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf) (andsvar):
Já, hann er frægur fyrir sínu furðuspörk, virðulegi forseti, hv. þingmaður. Hann kemur oft með einkennilega frumlega útúrsnúninga og það er allt í lagi því að umræðan verður bara skemmtilegri við það.
Ég hef reynt að svara öllum spurningunum ákaflega skýrt. Hann spurði aftur, eins og hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson, um afstöðu Samfylkingar í málinu. Hann hefur sjálfsagt ekki heyrt svar mitt við þeirri spurningu. Ég skal endurtaka það í þriðja sinn af því að það liggur alveg morgunljóst fyrir.
Við flytjum breytingartillögu við frumvarpið sem felur það í sér að þegar einkaaðilar fá heimild hjá menntamálaráðherra til að stofna og reka skóla á háskólastigi skuli þeir reknir sem sjálfseignarstofnanir. Gangi þessi breytingartillaga eftir — það er engin ástæða til að gera ráð fyrir öðru en að þingheimur sé tilbúinn að samþykkja þá breytingartillögu — munum við að sjálfsögðu styðja málið. En það er ekki fullreynt hver afdrif þeirrar tillögu verða. Okkar afstaða er alveg skýr. Við flytjum breytingartillögu og sjáum hver afdrif hennar verða.
Í öðru lagi, varðandi það hvort við leggjum til einn ríkisháskóla utan um tæknifræði. Nei, að sjálfsögðu ekki. Við ítrekum að við viljum kanna alla kosti við sameiningu skóla á háskólastigi. Þar skiptir engu hvort um er að ræða tvo opinbera skóla eða opinberan skóla og einkarekinn skóla. Við viljum kanna alla kosti sem bjóðast og að sjálfsögðu kanna hvort farsælt væri að námið í Tækniháskóla Íslands rynni inn í Háskóla Íslands. Ég er ekki viss um að það yrði niðurstaðan. En af hverju ekki að kanna það eins og aðra kosti? Að sjálfsögðu má kanna það en við erum alls ekki að leggja það til. Það sem stendur í álitinu hvað þau mál varðar er í fullkomnu samræmi við annað sem þar kemur fram. Við viljum kanna alla kosti og einnig hvort, ef af verður með hinn nýja einkarekna skóla, taka eigi upp nám í tæknifræði við einhverja þeirra skóla sem fyrir eru.