Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.
Frsm. 2. minni hluta menntmn. (Kolbrún Halldórsdóttir) (Vg) (andsvar):
Frú forseti. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur það að meginmarkmiði að hér ríki jafnrétti til náms. Við teljum slíku jafnrétti ógnað þegar ákveðnar námsgreinar eru lokaðar inni í einkareknum háskólum og innheimt fyrir þær skólagjöld. Við erum þeirrar skoðunar að einn ríkisrekinn háskóli sé ekki til að skammast sín fyrir þótt við höfum það ekki á stefnuskrá okkar að svo eigi það að vera.
Ég bendi hv. þingmanni á að Háskóli Íslands er afar lítill og veikburða í samanburði við marga háskóla í veröldinni. Hann er kannski ekki einu sinni háskóli. Hvað er háskóli? Hvað er universitas? Háskóli er skóli sem kennir allt í veröldinni. Háskóli Íslands hefur ekki það bolmagn að hann geti kennt allt í veröldinni. En ég vil að við rekum á Íslandi öflugan þjóðskóla sem kemst eins nálægt því og hægt er að vera universitas, skóli sem kennir allt. Þannig skóla vil ég að ríkisstjórnin standi vörð um og standi við bakið á en ekki að hún dreifi kröftunum stöðugt til Péturs og Páls, sem ég ber þó fulla virðingu fyrir. Ég andmæli því sem hv. þingmaður segir, að stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs gangi út á að einkaaðilar éti það sem úti frýs. Það höfum við aldrei sagt. Við höfum fagnað hverju einasta nýju tækifæri sem íslenskir stúdentar hafa til náms. Hins vegar höfum við einnig sagt: Það á ekki að gerast á kostnað Háskóla Íslands.