131. löggjafarþing — 75. fundur, 16. feb. 2005.
Þjónustutilskipun Evrópusambandsins.
282. mál
[13:41]
Helgi Hjörvar (Sf):
Virðulegur forseti. Ég vil inna hæstv. utanríkisráðherra eftir því hvaða efnisatriði tilskipunarinnar hann telur að þurfi sérstakrar skoðunar við og hvort hann telji einhver tiltekin efnisatriði í tilskipuninni orka beinlínis tvímælis eða vera öndverð hagsmunum Íslands.