Þjónustutilskipun Evrópusambandsins.
utanríkisráðherra (Davíð Oddsson) (S):
Herra forseti. Ég hef ekki mjög miklu að bæta við það sem áðan var skýrt frá. Hins vegar vek ég athygli á því vegna spurningar hv. þingmanns Helga Hjörvars að málið er enn þá í farvegi. Það er ekki komið á okkar vettvang. Engu að síður hafa komið fram ábendingar ekki bara hér á landi heldur einnig víðar um að sumir þættir þessarar tilskipunar gætu kippt grundvelli undan starfsemi, vinnubrögðum, samstarfi á vettvangi atvinnulífsins og launþegahreyfingarinnar sem hefur reynst vel víðast hvar. Ég tel algerlega nauðsynlegt að áður en við göngumst við því að styðja slíka tilskipun eða veita henni lagagildi hér á landi þá verði slíkir þættir eða slíkar ábendingar kannaðar alveg út í hörgul. Ég tel það vera skyldu okkar allra sem þingmanna og ekki síst þeirra sem eru í Stjórnarráðinu á hverjum tíma. Ég tel því að þær ábendingar sem hafa verið settar fram séu þess eðlis að menn þurfi mjög að skoða hug sinn og fylgjast mjög vel með framvindu þessa máls á vettvangi Evrópusamstarfsins áður en það kemur hingað í okkar rann.