Samgöngur milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.
Drífa Hjartardóttir (S):
Herra forseti. Leiðin er löng segja sumir, en mér þykir leiðin stutt á milli Reykjavíkur og Keflavíkur og hún verður enn betri með vegabótunum sem verið er að gera í Hafnarfirði og á Reykjanesbrautinni.
Það á sér líka stað mjög mikil uppbygging á Keflavíkurflugvelli og innan skamms munum við taka á móti líklegast um 1 millj. ferðamanna á ári og því mjög nauðsynlegt að vel sé að málinu staðið.
Ég tók eftir því að hv. þm. Mörður Árnason sagði að leggja yrði áherslu á að mikilvægast væri að efla samgöngur í þéttbýli. Það er mikilvægast að efla samgöngur á öllu landinu því allir landsmenn eiga að búa við góðar samgöngur og vil ég taka fram að aldrei hefur annað eins verið gert í samgöngumálum Íslendinga og síðustu ár. Ég vil að flugvöllurinn fái að vera hér áfram. Hann er bara eins og járnbrautarstöð eins og einn ágætur maður sagði.