131. löggjafarþing — 75. fundur,  16. feb. 2005.

Flugsamgöngur til Ísafjarðarbæjar.

507. mál
[14:59]

Fyrirspyrjandi (Anna Kristín Gunnarsdóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég verð að segja eins og aðrir að þessar tölur um hversu oft ekki hefur verið hægt að lenda á Ísafirði eða flug þangað hefur verið fellt niður voru mun hærri en mig hafði órað fyrir.

Það var ýmislegt ánægjulegt sem kom fram í svari hæstv. ráðherra, m.a. það að hægt sé að hafa umsjón með vellinum á Þingeyri og stýra ýmsu þar frá Ísafirði. Það er auðvitað mikill kostur í svona dæmi þegar þarf að hafa tvo velli tiltæka.

Það er alveg augljóst að öll þau flug sem þarf að fella niður hljóta að vera ákaflega dýr fyrir flugrekstraraðilann og þar með fyrir okkur, neytendur sem nýtum flug, því það erum við sem berum alla óhagkvæmni þegar upp er staðið. Ef ég hefði vitað allt um þá möguleika sem Þingeyrarflugvöllur hefur í sér hefði ég líka spurt hæstv. ráðherra hversu mikið væri áætlað að kostaði að lengja völlinn þannig að hann gæti þjónað fyrir utanlandsflug einnig. En ég reikna ekki með að hæstv. ráðherra viti það.

Það er auðséð að það er í rauninni ekki svo margt sem vantar. Það vantar flugleiðsögutæki, lýsingu, að lengja flugbrautina og hugsanlega að malbika hana en það kom reyndar ekki fram í svari ráðherra. Ef hæstv. ráðherra hefur hugmynd um hversu mikið kostar að lengja brautina þannig að hún geti þjónað utanlandsflugi einnig þætti mér afar fróðlegt að fá að heyra það.