131. löggjafarþing — 76. fundur,  17. feb. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[10:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s., dagsett 16. febrúar 2005:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Guðrún Inga Ingólfsdóttir hagfræðingur, Reykjavík, taki sæti mitt á Alþingi á meðan en 1. varamaður á listanum situr um þessar mundir á Alþingi.“

 

Guðrún Inga Ingólfsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.