Fjárþörf Samkeppnisstofnunar.
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ekki er hægt að segja að hæstv. ráðherra sé beinlínis að auðvelda okkur störfin í þinginu með því að halda frá okkur upplýsingum um hver niðurstaðan var í þeirri þarfagreiningu sem hún nefnir að farið hafi fram. Af hverju er það eitthvert leyndarmál á þessari stundu hver sé fjárþörf stofnunarinnar sem ráðherra vill ekki upplýsa? Ég fæ engan botn í það og það vekur auðvitað bara tortryggni þegar svoleiðis er haldið á málum. Ég kalla eftir því að ráðherrann upplýsi hver þessi þarfagreining er. Getur hún staðfest það hér að í þessari þarfagreiningu hafi komið fram að fjölga þurfi sérfræðingum um tíu, úr 11 í 21, bara á samkeppnissviðinu? Ég spyr um það. Tekur hún undir það og kom það fram í þessari þarfagreiningu að fjárþörf stofnunarinnar sé 100 millj. kr.? Það er þetta sem verið er að kalla eftir. Við verðum kannski að bíða eftir því, virðulegi forseti, að Sjálfstæðisflokkurinn, þingflokkur sjálfstæðismanna, losi þetta frumvarp úr gíslingu vegna þess að það er ekki hægt að heyra annað en að menn þar liggi yfir því að skoða það. Sjálfstæðismenn hafa ekki beinlínis verið í forsvari fyrir þeim sem hafa haldið á lofti nauðsyn þess að efla Samkeppnisstofnun og þess vegna býður manni í grun að frumvarpið sé í gíslingu hjá samstarfsflokknum.
Það hefur komið mjög illa við neytendur hve stofnuninni hefur verið haldið í miklu fjársvelti og nefni ég bara að árið 1997 þegar við kölluðum eftir að úttekt yrði gerð á olíufélögunum þá var það ekki hægt af því að það kostaði 10–20 millj. að gera slíka úttekt og það var ekki hægt að verða við því með þeim afleiðingum sem við þekkjum í þeirri rannsókn sem síðar fór fram á olíufélögunum.