131. löggjafarþing — 76. fundur,  17. feb. 2005.

Fjárþörf Samkeppnisstofnunar.

54. mál
[16:35]

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Samkeppnisstofnun hefur verið á undanförnum árum mikið í umræðunni. Hún hefur verið umdeild frá einum flokki, þ.e. Sjálfstæðisflokknum. Ég held að allir aðrir flokkar í landinu hafi tekið undir nauðsyn þess að Samkeppnisstofnun væri til staðar og það þyrfti að efla hana og styrkja. En a.m.k. sumir sjálfstæðismenn hafa haft þá skoðun að best væri að leggja hana niður og helst samkeppnislögin líka.

Núna hlýtur það að setja svolítinn hroll að mönnum að í kjölfar stærsta máls sem Samkeppnisstofnun hefur átt við, þ.e. olíufélagamálsins, skulu ríkisstjórnarflokkarnir telja ástæðu til að umturna þessari stofnun, skipta henni upp og fara að breyta allri starfsemi hennar.

Núna þegar berast fréttir af því að frumvörpin sem innihalda þetta hafi verið föst í fórum sjálfstæðismanna um nokkurn tíma og þar tafin hljóta menn líka að velta fyrir sér, það geri ég a.m.k. í kjölfar þess sem hæstv. ráðherra sagði áðan, hvort hæstv. ráðherra hafi í raun nokkuð getað svarað spurningunni um hve mikla peninga bæri að láta í starfsemi stofnunarinnar, einfaldlega vegna þess að það sem Sjálfstæðisflokkurinn er að fást við í málinu sé ekki orðalagið heldur umfang þess sem stofnunin á að glíma við og þar af leiðandi hve mikla peninga stofnunin eigi að hafa umleikis til þess að vinna þau verkefni sem þar eiga að vera á borðum.

Ég held að ástæða sé til að hafa af þessu öllu saman áhyggjur. Það er auðvitað umhugsunarefni fyrir okkur á Íslandi að mál skuli vera með þeim hætti, sem greinilegt er, að afskipti, pólitísk afskipti opinberra stjórnvalda skuli með svo beinum hætti eiga að geta beinst að starfsemi af þessu tagi, sem allir ættu að sjá að mjög nauðsynlegt er að koma í einhvers konar skjól fyrir pólitískum áhrifum. Ég ætla ekki að trúa því fyrr en ég þá sé það að meiningin sé að einhvers konar yfirráð þessarar stofnunar verði til pólitískt valið sem eigi að velja þau verkefni sem stofnunin eigi að taka á eða ekki taka á. Ég ætla ekki að trúa því fyrr en ég tek á því, af því að það er auðvitað mál sem má ekki gerast hér á hv. Alþingi, að menn gangi ekki þannig frá samkeppnislögum og samkeppnisumhverfinu í landinu og að því verði komið undan pólitískum áhrifum a.m.k. með þeim hætti sem menn hafa þá vit til, en að ekki sé verið að búa til möguleika til að hafa áhrif á það hvað er rannsakað eða hvað ekki rannsakað.

Ég ætla að segja það til viðbótar að ég trúi því ekki heldur að við þurfum að standa frammi fyrir því að eftir þetta stærsta samkeppnismál sem upp hefur komið í landinu verði niðurstaðan sú að stjórnvöld telji það vera sitt helsta hlutverk að losna við þann sem gekk fram í því að sjá til þess að umrætt mál yrði rannsakað og því komið upp á borðið, þó svo að niðurstaðan af því máli sé nú sú að þeir sem þar brutu lög vísvitandi, að þau fyrirtæki eigi að komast undan með langstærstan hluta hagnaðarins sem þau höfðu af því. Það er auðvitað ekki þeim að kenna sem stjórnuðu Samkeppnisstofnun að svo skuli fara.

En ef það er þannig á hv. Alþingi að þeir ráðamenn sem fara með völdin í landinu telji það sitt helsta hlutverk að koma fyrir kattarnef þeim sem eiga þó heiðurinn af því að koma þessum málum í dagsljósið, þá held ég að Íslendingar þurfi að fara svolítið yfir lýðræðishefð sína og skoða hvort ekki þurfi að taka í hnakkann á þeim sem hafa þær pólitísku skoðanir uppi og láta þær þá koma skýrt í ljós. Ég ætla satt að segja að vona — þangað til ég sé það — að svona sé þetta nú ekki.