Reiðhöll á Blönduósi.
Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf):
Herra forseti. Sá efnaði maður sem byggði reiðhöllina á Blönduósi stóð uppi slyppur og snauður þegar byggingunni var lokið. Hestamenn á svæðinu keyptu af honum reiðhöllina ásamt fáeinum sveitarfélögum á svæðinu en þeir hafa ekki getað fjármagnað hana að fullu. Um er að ræða 3–4 millj. sem út af standa og það er of mikið til að sveitarfélag þar sem íbúarnir hafa meðaltekjur upp á 120 þús. geti staðið undir því. Hér er um jafnræðisspurningu að ræða, hæstv. ráðherra, og ég vona að í þetta sinn verði um meira en orðin tóm að ræða hjá hæstv. ráðherra.