131. löggjafarþing — 77. fundur,  21. feb. 2005.

Reiðhöll á Blönduósi.

[15:15]

landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég gat þess áðan að ríkið hefði aðeins byggt eina höll, höllina í Víðidal. Að öðrum höllum hefur ríkisvaldið ekki komið nema í gegnum þann sjóð sem heitir Framleiðnisjóður landbúnaðarins. Ég hygg að Blönduósingar hafi fengið sinn skammt í gegnum samtök sín. Þannig hefur komið smávegis stuðningur úr Framleiðnisjóði til bygginganna þar sem þær hafa verið reistar.

Hvernig þetta fór þarna er alvarlegt mál fyrst að sá sem höllina byggði hafði ekki efni á því þegar til kom. Ég vil segja fyrir mitt leyti að við skulum skoða þetta í fyllingu tímans og þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að taka málið upp í þinginu því að ég álít að skýrsla nefndarinnar sé mjög vel unnin, fjallar um reiðhallirnar, reiðleiðir o.s.frv. þannig að hún markar tímamót.