Flutningur starfa á landsbyggðina.
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Ég gleðst alltaf mjög þegar ég frétti af fjölgun starfa á landsbyggðinni og það sem hv. þingmaður nefndi í sambandi við Íslandsbanka eru mjög ánægjuleg tíðindi.
Hv. þingmaður taldi upp ákveðna hagstæða þætti á landsbyggðinni. Ég tek undir það og bæti einu við, sem er rafmagnsverð. Það hefur almennt lækkað á landsbyggðinni um 20%–25%, a.m.k. á Rarik-svæði. Enn fjölgar því vonandi ástæðum þess að fyrirtæki sjái sér hag í því að flytja starfsemi út á land eða stofnsetja nýja starfsemi þar.
Af því að hv. þingmaður nefndi fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni er það ekki iðnaðarráðherra sem fer með það mál samkvæmt byggðaáætlun, heldur forsætisráðherra. Við skiptum þannig með okkur verkum í byggðaáætlun að allir ráðherrar hafa sitt hlutverk og hæstv. forsætisráðherra fer með málefni sem varða opinber störf á landsbyggðinni.
Í tíð fyrrv. forsætisráðherra var nefnd að störfum í þeim efnum, ja, nefnd eða ekki nefnd, alla vega veit ég að hv. 2. þm. Norðaust., Halldór Blöndal, var í þeirri nefnd og hv. 3. þm. Norðvest., Magnús Stefánsson. Þeir skiluðu skýrslu og ég trúi því að þar geti verið að finna einhverjar góðar tillögur.