131. löggjafarþing — 77. fundur,  21. feb. 2005.

Afdrif laxa í sjó.

58. mál
[16:26]

Flm. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætlaði að koma í ræðustól til að taka hæstv. ráðherra til bæna fyrir ræðu hans áðan en er hættur við það. Mér finnast það söguleg tíðindi þegar hæstv. ráðherra kemur og gleður þingheim og gott fólk með því að lýsa því yfir að hann sé kominn í hóp þeirra sem vilja með einhverjum hætti reyna að opna fyrir göngu urriðans niður í Efra-Sog og þar með að taka hugsanlega upp Steingrímsstöð. Þetta er reyndar það sama og kollegi hans, hæstv. dómsmálaráðherra, hefur lýst yfir í framtíðarstefnu Þingvallaþjóðgarðsins. Fyrir þetta þakka ég, mér þykja þetta ákaflega merk tíðindi.

Ég ætla þess vegna að spara það við mig að benda þingheimi á að mér finnst kannski hæstv. ráðherra vera full hörundssár. Þetta er nú karlmenni eins og við þekkjum, bóndasonur úr Árnessýslu, að vísu brúnaþungur stundum. En þó ég nefni það í ræðustól, sem ekki bara öll þjóðin veit heldur ákaflega margir sem hafa stundað stangveiði á alþjóðlega vísu og verndun laxastofnsins, að Orri Vigfússon hafi sannarlega staðið sig vel í þeim efnum að kaupa upp laxveiði í hafi má hæstv. ráðherra ekki koma hingað og smækka sjálfan sig á því að halda fram eigin ráðuneytisstjóra í þeim efnum. Vissulega og vafalítið hefur sá ágæti ráðuneytisstjóri staðið sig vel en forgöngumaðurinn var Orri Vigfússon, það vitum við öll.

Sömuleiðis verður það að koma fram, frú forseti, að líklegt er að hæstv. landbúnaðarráðherra hafi ekki nennt að lesa þá tillögu sem hér liggur fyrir því það er af og frá að Veiðimálastofnun sé búin að hrinda í framkvæmd því sem þar er lagt til. Hitt er rétt að eftir að við, nokkrir þingmenn, höfum klifað á nauðsyn þessara rannsókna árum saman hefur Veiðimálastofnun tekið sig á með góðum stuðningi hæstv. ráðherra og fjárlagavaldsins og ráðist í upphaf á ýmsum þeim rannsóknum sem verið er að tala um hér.