Vernd og sjálfbær nýting lífvera á hafsbotni.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir þá tillögu sem hér er rædd því að í henni er margt að finna sem væri eðlilegt að standa betur að en gert hefur verið á undanförnum árum. Grunnurinn að því að umgangast sjávarbotninn og lífríki hans er auðvitað sá að afla þekkingar um það hvernig ástand ákveðinna svæða á hafsbotni er, hvar t.d. kóralsvæði eru og hvar þau eru óskemmd, hvar þau hafa verið nýtt og hvernig eigi þá að standa að slíku rannsóknarstarfi svo að við fáum út úr því markvissar niðurstöður.
Við erum búin að stunda togveiðar á Íslandsmiðum í áratugi, og ekki bara við Íslendingar heldur einnig aðrar þjóðir með okkur lengst af. Það er ekki launungarmál, hygg ég, að Þjóðverjar höfðu auðvitað stundað hér veiðar á mjög öflugum og stórum skipum árum saman. Fleiri þjóðir stunduðu hér líka veiðar þó að ég hyggi að Þjóðverjarnir hafi verið með öflugustu togveiðiskipin hér við land áður en við vorum komin yfir í þá skuttogaravæðingu sem nú er og hófst upp úr 1970 hér á landi. Sjávarbotn við landið þar sem kórall vex breytist við nýtingu veiðarfæranna og hann breytist því meir og hraðar eftir því sem tækin sem notuð eru við veiðarnar eru aflmeiri, þ.e. eftir því sem skipin hafa meira afl og eftir því sem veiðarfærin verða þyngri. Þar af leiðandi hefur það gerst á tækniöld að eftir að skipin stækkuðu, aflinn varð meiri og þyngd veiðarfæranna jókst hefur vafalaust verið höggvið niður talsvert af kóralsvæðum við landið. Það vita menn sem hafa stundað þessar veiðar, m.a. sá sem hér stendur sem hefur örugglega tekið þátt í því hér á árum áður að breyta landslagi á hafsbotni.
Það þarf oft ekki mörg ár til að breyta hafsbotninum og það má taka sem dæmi að þegar skuttogararnir voru að koma hér að landi um 1970 var talið illtogandi á svæðum eins og austur af Halanum af meira en 120 faðma dýpi. Ég hygg að mönnum þyki svæðið nokkuð silkilagt í dag alveg niður á 140–150 faðma. Þá sjáum við að smátt og smátt hafa menn verið að teygja sig dýpra á slóðinni og þannig breytist botnlagið. Þau gróðursamfélög sem voru fyrir eins og gróðursamfélög af miklum osti og ostakúlum og ýmsar hrúgur og fyrirstöður sem áður stöðvuðu veiðar á þessum svæðum gefa smátt og smátt eftir við langtímanotkun.
Nú er það ekki svo að ekkert hafi verið aðhafst í þá átt að friða svæði hér við landið. Má m.a. sjá það á bls. 10 í fylgiskjali með þessari tillögu. Þar eru kortlögð friðunarsvæði við Ísland, m.a. bann við togveiðum allt árið, og þar má sjá að búið er að loka ákveðnum svæðum vestur af landinu þar sem kórall var kannski í meira mæli áður fyrr en nú er. Samt eru þarna eftir ákveðin svæði og ákveðnir blettir, hygg ég, sem náðist utan um með þeirri lokun sem gerð var upp úr 1993 þegar suðurhluta Melsaxins — sem Þjóðverjar gáfu nafn hér á árum áður — var lokað ásamt öllum útkantinum fyrir Vesturlandi langleiðina norður undir vesturhorn Víkuráls. Ég hygg að innan þessara svæða megi finna einstök lítil kóralsvæði sem enn þá eru kannski til staðar og standa fyrir sínu.
Síðan er það auðvitað við Reykjaneshrygginn sjálfan, sem er erfiður yfirferðar vegna eigin landslags á botni, að þar hafa kóralsvæði verndast að einhverju leyti. Síðan hafa nokkur svæði verið friðuð eins og lítil svæði út af vesturhorni Víkuráls og nokkuð stórt svæði út af Ströndum og Húnaflóa sem ekki er beint kóralsvæði en þó, á grunnu vatni eru þar ákveðnar kóralmyndanir, eins og uppi á hornbakkanum á sumum svæðum.
Síðan má nefna svæði eins og fyrir Norðausturlandi sem eru líka alfriðuð allt árið. Nokkuð hefur því verið gert í þessu en við fórum auðvitað mjög seint af stað og erum örugglega búin að breyta miklu í botnlaginu við Ísland á undanförnum áratugum. Það segir samt ekki að við eigum ekki að skoða svona tillögur með fullri virðingu og reyna að grípa til aðgerða þar sem við getum verið sammála um að sé ástæða til að koma í veg fyrir frekari spjöll. Til þess þurfa auðvitað að fara fram marktækar rannsóknir og við höfum séð það nýverið, m.a. hafa í sjónvarpinu verið sýndar myndir af rannsóknum á kóralsvæðum við Suðurland og í útköntunum þar.
Það er hins vegar eitt atriði sem ég vil segja í lok máls míns. Þegar svona svæðum hefur verið lokað eins og ég hef hér nefnt, sem eru búin að vera lokuð í áratugi, skorti að mínu viti mjög á það áður en svæðunum var lokað að þau væru skoðuð. Það hefði verið nauðsynlegt að skoða ákveðin tiltekin svæði til þess að sjá hvernig þau litu út áður en veiðar voru þar bannaðar — en þær eru bannaðar allt árið á þó nokkrum svæðum — m.a. til að sjá hvað gerist á svæðum sem er búið að vera togveiðibann á í yfir áratug eins og nú er orðið. Hvernig taka þau við sér, hvað gerist á þeim og lifna þau við aftur, og þá hversu hratt? Þetta var því miður ekki gert og við vitum ekki hvað við erum að fást við.