Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.
Frsm. iðnn. (Birkir Jón Jónsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra er ekki umboðslaus ráðherra. Hún hefur fullt traust þingflokksins í þessu máli sem öðrum. Hins vegar er það þannig, og það hefur komið mjög skýrt fram í máli stjórnarliða hér á þingi, að við erum rétt að hefja þessa umræðu. Hér var einungis um viljayfirlýsingu að ræða og þar eiga menn eftir að komast að niðurstöðu sem verður væntanlega borin undir alla þá aðila er málið varðar, hvort sem það er borgarstjórnin í Reykjavík eða fulltrúar í stjórnarmeirihlutanum hér á þingi. Ég lagði áherslu á það að við ættum eftir að ræða þetta mál mjög gaumgæfilega og það er ekki stefna Framsóknarflokksins að selja Landsvirkjun.