Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.
Halldór Blöndal (S) (andsvar):
Frú forseti. Það er hálfspaugilegt að heyra hv. þingmann vera að taka þátt í diskusjón sem átti sér stað fyrir fjölmörgum árum og hann þekkir ekki. Í þessum gömlu lögum frá 1996 stendur skýrlega að ekki megi selja Póst og síma nema með samþykki Alþingis. Flutningsmaður þess máls var ég, og til hvers stóð hugur minn á þeim tíma nema til þess eins að tryggja það að Landssíminn yrði ekki seldur nema með samþykki Alþingis?
Ég held að hv. þingmaður verði að reyna að skilja það að ekki geta þingmenn lagt til meiri tryggingu en þá að mál skuli borið undir Alþingi. Ég vænti að hv. þingmaður sé sammála mér um það að við verðum að hlíta því sem Alþingi samþykkir. Flestir gera sér grein fyrir því að það er affarasælast þó að kunni að vera á því undantekningar.
Um hitt hygg ég að við séum ekki sammála, hver staðan sé hjá bæjarstjórn Húsavíkur. Þeir sem bera ábyrgð á rekstri orkumála þar, orkuveitunnar, hljóta að leggja sig í framkróka um að reyna að lækka verðið til neytenda, til Húsvíkinga. Ég hygg að það sé óverjandi með öllu að þeir útiloki fyrir fram þær leiðir sem færar eru í þeim efnum. Ég held að það sé alveg útilokað að halda því fram. Það væri ábyrgðarleysi að halda því fram að sveitarstjórnarmenn mættu ekki að leita allra leiða til þess að lækka orkuverð og tryggja nægilega orku til umbjóðenda sinna.
Í annan stað vil ég segja að frammistaða R-listans í Reykjavík sýnir það ekki glögglega að hægt sé treysta þeim í sveitarstjórn fyrir því að vilja halda vel utan um eignarhluta sinn í orkufyrirtækjum. Að vísu hafa það aðallega verið fyrrverandi alþýðubandalagsmenn í Samfylkingunni sem hafa talað um þetta mál og væri gaman að fá að heyra hvað gamlir kratar hafa um það segja.