131. löggjafarþing — 78. fundur,  22. feb. 2005.

Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.

399. mál
[17:19]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég heyri að hv. þingmaður leggur svolítið út af orðum mínum í þá veru að svo mætti skilja að ég telji að það væri sérstök trygging fyrir sveitarfélög ef Orkuveita Reykjavíkur tæki yfir hitaveitur þeirra. Ég held að ég hafi nú ekki orðað þetta svona. Ég held að ég hafi orðað þetta nákvæmlega þannig að hægt væri að finna þess dæmi með yfirtöku Orkuveitu Reykjavíkur núna í samningum bæði við veitur austur á Suðurlandinu og jafnvel á Akranesi og Borgarnesi að íbúum byðist þjónustan á betra verði en áður hefur verið. Þá legg ég engan dóm á það hvort þar sé um algilda fullyrðingu fyrir önnur sveitarfélög að ræða sem hugsanlega tengjast Orkuveitu Reykjavíkur. Ég benti einfaldlega á þetta og ég hygg að hv. þingmaður sé mér sammála um að svona hefur þetta verið að gerast og það byggist sjálfsagt á því að Orkuveita Reykjavíkur hefur mikla fjármuni, er öflugt fyrirtæki og með mikla þekkingu á hitaveitum og hitaveituframkvæmdum.