131. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2005.

Útræðisréttur strandjarða.

524. mál
[13:45]

Jón Gunnarsson (Sf):

Herra forseti. Kötturinn sagði: Ekki ég. Ekki á mínu forræði þó að ég sé vinur bændanna, sagði hæstv. landbúnaðarráðherra.

Hlunnindi jarða hafa verið mikils virði í gegnum tíðina og það má segja þeim mun meira virði eftir því sem dregið hefur úr hefðbundnum landbúnaði. Ýmis hlunnindi þessara jarða hafa fært auknar stoðir undir þann rekstur sem fram fer á jörðunum og nægir þar að nefna veiðirétt í ám og vötnum. Til forna voru það aldeilis hlunnindi að hafa útræðisrétt frá sjávarjörðum en þessi hlunnindi hafa verið tekin í burtu af þeim bændum sem eiga þessar jarðir með lögum um stjórn fiskveiða. Ég ætla bara að lýsa þeirri von minni að hæstv. landbúnaðarráðherra reyni í þessu máli að vera skjöldur og sverð þessara bænda, ekki síður bænda sem búa á sjávarjörðum en annarra bænda því að þeir sögðu mér að hæstv. ráðherra teldi sig eiga að gæta hagsmuna bænda. Því hljóta þessir bændur að vera þar í hópi líka.