131. löggjafarþing — 80. fundur,  24. feb. 2005.

Staðan í viðræðum um verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

[10:31]

Margrét Frímannsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Samkvæmt fréttum sem nú berast má ætla að samkomulag sé í burðarliðnum hvað varðar tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og er sannarlega tími til kominn þar sem skammt er í að kjósa á um tillögu nefndar um sameiningu sveitarfélaganna. En sveitarstjórnarmenn hafa ítrekað lýst því yfir að ekki verði kosið um sameiningu nema það liggi ljóst fyrir hverjir tekjustofnar sveitarfélaganna verði í framtíðinni.

Sveitarfélögin hafa ekki fengið hlutdeild í tekjustofnum hins opinbera í réttu hlutfalli við þau verkefni sem þeim er ætlað að vinna. Það kemur m.a. fram í því að 40% allra sveitarfélaga á landinu voru með neikvæða rekstrarniðurstöðu á árinu 2003 upp á samtals ríflega 3 milljarða kr. Samkvæmt framreikningum hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga mun þróunin áfram verða í sömu átt verði ekki verulegar breytingar á tekjustofnunum, eins og skýrt kom fram á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í nóvember. Það hlýtur að verða að leiðrétta þessa grunnskiptingu. Fráleitt er að ræða um færri og stærri sveitarfélög og aukin verkefni nema núverandi staða verði lagfærð og til komi nýir tekjustofnar.

Jafnframt þarf að taka sérstaklega á stöðu nokkurra sveitarfélaga sem eru í hreinum bráðavanda. Tillaga fulltrúa ríkisstjórnarinnar um 400 millj. kr. í aukafjárveitingu ríkisins til jöfnunarsjóðs var miðuð við bráðavanda 24 sveitarfélaga sem eftirlitsnefnd hefur til umfjöllunar. Það væri þó aðeins plástursaðgerð og engin framtíðarlausn. Hún mun ekki leysa fjárhagsvanda þessara 24 sveitarfélaga til framtíðar, hvað þá ef horft er til þeirrar staðreyndar að sveitarstjórnarmenn meta stöðuna þannig að ekki einungis 24 sveitarfélög eigi við verulegan vanda að stríða heldur séu þau mun fleiri. Ríkisstjórnin neitar að horfast í augu við raunverulegan vanda en kýs plástrameðferðir sem duga skammt.

Nú er búið að ráðstafa þessum milljónum að hluta og verður fróðlegt að fylgjast með hverju það skilar. Þessi 24 sveitarfélög munu að öllum líkindum sameinast öðrum en vandi þeirra hverfur ekki við það. Hann færist aðeins inn í stærri einingar. Ef marka má fréttaflutning af væntanlegum niðurstöðum í samningum ríkisins og sveitarfélaganna er langt frá því að tekjugrunnur sveitarfélaganna hafi verið leiðréttur til frambúðar.

Mér virðist sem staðan sé á þá leið að ríkisstjórnin hafi stillt sveitarfélögunum upp við vegg og sagt: Þetta er það sem þið fáið og annað ekki. Allir fulltrúar sveitarfélaganna eru óánægðir en pólitískir samherjar ríkisstjórnarinnar velta því fyrir sér hvort þeir láti undan þrýstingi. Fróðlegt væri að heyra mat hæstv. ráðherra á stöðunni: Telur hann að verið sé að tryggja almennan tekjugrunn sveitarfélaganna eða er þetta bráðabirgðaaðgerð? Eða má treysta því að rekstur þeirra mikilvægu eininga sem sveitarfélögin eru sé tryggður til frambúðar?

Það að ríkið greiði sveitarfélögum fasteignaskatt af eignum ríkisins er ekki lausn heldur sjálfsagt réttlætismál. Samt, ef marka má fréttir, er gert ráð fyrir að þær greiðslur komi á þremur árum í þremur áföngum. Er það til marks um vilja ríkisstjórnarinnar að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaganna að þar sé um fasta upphæð að ræða, langt frá virðismati þessara eigna? Hvernig á að taka á þeim vanda sem sveitarfélögin eru í varðandi félagslegar íbúðir sem standa tómar? Er ætlun ríkisstjórnarinnar að koma til móts við kröfur sveitarfélaganna um 2 milljarða kr. hækkun á framlögum í jöfnunarsjóðinn?

Viðræður sveitarfélaga og ríkisvalds áttu að vera á jafnréttisgrundvelli, snúast um leiðréttingu á tekjum ríkis og sveitarfélaga. Sá jafnréttisgrundvöllur er ekki fyrir hendi. Það er ekki hægt að setja aukin verkefni á sveitarfélögin án þess að raunhæfir tekjustofnar fylgi með og núverandi rekstrargrunnur sé leiðréttur. Það var og er meginkrafa fulltrúa sveitarfélaganna. Er t.d. ekki eðlilegt að sveitarfélögin ákveði sjálf útsvarsprósentuna hverju sinni? Er þeim ekki fyllilega treystandi til þess án íhlutunar ríkisvaldsins? Það á að virða sjálfsákvörðunarrétt þeirra í þeim efnum. En það er mest um vert að menn ljúki því verkefni að styrkja fjárhagsstöðu sveitarfélaganna til frambúðar.

Því spyr ég hæstv. ráðherra:

Hefur verið tekin ákvörðun um að leiðrétta þá skekkju sem er í núverandi tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og veldur því að 40% allra sveitarfélaga á landinu búa við neikvæða rekstrarniðurstöðu?

Hvað hefur verið gert til að taka sérstaklega á stöðu nokkurra sveitarfélaga sem eru í bráðafjárhagsvanda, m.a. vegna fólksfækkunar og tekjumissis á síðustu árum og er fjárhagsgrundvöllur þeirra sveitarfélaga tryggður til frambúðar? Hversu mörg sveitarfélög er um að ræða?

Er áætlað að auka framlög í jöfnunarsjóð? Ef svo er, hve mikið? Hefur náðst sátt um framtíðartekjustofna ríkis og sveitarfélaga? Ef svo er, í hverju felst sú sátt? Hefur náðst sátt um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga? Ef svo er, hvað felst í þeirri sátt?