Staðan í viðræðum um verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Virðulegur forseti. Viðræður sveitarfélaganna um nýja tekjustofna standa enn yfir en fréttir af gangi mála benda ekki til þess að byggt verði undir sífellt aukin verkefni sveitarfélaga með varanlegum tekjuauka þó ætlast sé til þess af stjórnvöldum að fleiri verkefni verði færð á sveitarstjórnarstigið í framtíðinni.
Viðhorf stjórnvalda virðast enn þá vera tímabundnar bráðabirgðalausnir án þess að taka á vandanum, t.d. með auknu fé í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Krafa fólks er um bætta þjónustu sveitarfélaga en til þess þarf auknar tekjur. Sveitarfélög á ekki að þvinga til sameiningar og loforð um aukna fjármuni eiga ekki að vera beita eða gulrót frá stjórnvöldum. Skuldir sveitarfélaga sem þegar standa illa fjárhagslega hverfa ekki við sameiningu.
Eins og fram kom í máli hæstv. félagsmálaráðherra er vandinn víða tengdur fólksfækkun og tekjusamdrætti því samfara. Stefna ríkisstjórnarinnar er að viðhalda óvissu í byggðum landsins. Að því hef ég oft vikið í máli mínu í þessum ræðustól á Alþingi.
Sjávarútvegsútfærslan og stefnan um sölu á kvóta og tilfærslu á kvótum milli byggðarlaga getur aldrei búið til festu fyrir byggðirnar og það mun aldrei vera hægt að byggja á því til framtíðar með óbreyttri fiskveiðistjórnun að sveitarfélögin hafi örugga og ábyggilega stöðu. Það verða að koma til ný viðhorf gagnvart sveitarstjórnunum, ný viðhorf um tekjuskiptingu ef tryggt á að vera að sveitarfélögin geti eflst og ríkið verður að viðurkenna þarfirnar og gefa eftir af tekjustofnum sínum.