Skoðunarferðir í Surtsey.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg):
Frú forseti. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. umhverfisráðherra. Ég er þeirrar skoðunar að stíga eigi afar varlega til jarðar hvað varðar Surtsey. Surtsey er einstakt tækifæri til að rannsaka hvernig líf nemur nýtt land og hvernig einstaka jarðmyndanir Surtseyjar veðrast og þroskast. Ég tel að samanburður við Galapagoseyjar sé ekki nema að litlu leyti raunhæfur því þar er fullnumið land og í jafnvægi, að vísu hefur ákaflega sérstæð náttúra þróast þar í mikilli einangrun um árþúsundir. En þar eru ekki til staðar sömu aðstæður og þær sem menn eru að vernda í Surtsey, þ.e. að rannsaka hvernig líf nemur land á nýju svæði, hvernig það þroskast, hvernig jarðmyndanir veðrast o.s.frv. Ég held að aðdráttarafl Surtseyjar verði betur nýtt með því að miðla fræðslu um eyjuna og standa fyrir myndarlegum rannsóknum þar og miðla þeim til almennings og ferðamanna með öðrum hætti en þeim að þeir komi þar á land í stórum stíl.