Landnám lífvera í Surtsey.
umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S):
Frú forseti. Reglulega hefur verið gerð grein fyrir niðurstöðum rannsókna í og við Surtsey frá því að þær hófust. Surtseyjarfélagið hefur frá árinu 1965 gefið út 11 vísindaskýrslur á ensku um rannsóknir í Surtsey. Síðasta skýrslan ,,Surtsey research 11“ kom út árið 2000 og nú er unnið að nýrri skýrslu sem væntanlega kemur út fyrir árslok 2005.
Á 40 ára afmæli Surtseyjar árið 2003 opnaði Surtseyjarfélagið íslenska heimasíðu um Surtsey þar sem almenningur getur kynnt sér sögu og þróun eyjarinnar og fræðst um rannsóknir sem þar eru stundaðar. Með opnun heimasíðunnar var stigið stórt skref í því að veita almenningi betri aðgang að upplýsingum um Surtsey. Nú er unnið að því að opna enska útgáfu af heimasíðunni. Auk þessa efnis hefur fjöldi ritgerða og greina birst í blöðum og tímaritum og bækur hafa verið skrifaðar um Surtsey. Þá hafa bæði innlendir og erlendir aðilar unnið sjónvarpsþætti og fræðsluefni um eyna og haldnir hafa verið opinberir fræðslufundir um hana.
Kappkostað hefur verið að koma á framfæri til fjölmiðla fréttum úr leiðöngrum til eyjarinnar. Þannig hefur almenningur ætíð fengið fréttir af því sem markverðast hefur þótt í landnámi lífvera í Surtsey á hverju ári. Þess má einnig geta að fyrir rúmum tíu árum stóðu Surtseyjarfélagið og Hið íslenska náttúrufræðifélag fyrir útgáfu á bók á íslensku um Surtsey í tilefni af 30 ára afmæli Surtseyjar þar sem gerð var grein fyrir þeim rannsóknum sem þá höfðu farið fram. Nú eru til í handriti ensk og þýsk þýðing á þeirri bók sem höfundurinn, Sturla Friðriksson náttúrufræðingur, hefur endurskoðað og bætt við nýjustu rannsóknarniðurstöðum. Því hefur verið ákveðið af hálfu Surtseyjarfélagsins og Hins íslenska náttúrufræðifélags að endurútgefa áðurnefnda bók en nú á ensku og þýsku að viðbættum niðurstöðum rannsókna síðastliðinna tíu ára og minnast á þann hátt 40 ára afmælis Surtseyjar. Ríkisstjórnin hefur styrkt þá útgáfu bókarinnar.
Fullyrða má að engin eldstöð á Íslandi hefur verið jafnmikið rannsökuð og kynnt og Surtsey. Á það jafnt við um jarðfræði sem landnám lífvera.