Landnám lífvera í Surtsey.
Jón Gunnarsson (Sf):
Frú forseti. Eins neikvæður og ég var gagnvart þeim hugmyndum sem hv. fyrirspyrjandi talaði fyrir í fyrri fyrirspurn sinni þá er ég jafnjákvæður fyrir því sem hér er rætt um.
Fræðsla fyrir almenning, kannski ekki síst fyrir grunnskólanemendur, um landnám lífvera í Surtsey er afskaplega mikilvæg og partur af því að halda þessari perlu eins og hún er. Það er stuðlar að því að vekja virðingu fyrir því að þar þurfi að ríkja friðhelgi og ekki eigi að fara um eyjuna eins og önnur lönd.
Ef slys verður í umgengninni við Surtsey mun gildi þeirra upplýsinga sem menn safna þar og þeirra rannsókna sem þar fara fram minnka verulega og fyrirbrigðið ekki verða einstakt eins og nú er. Við eigum að auka þessa fræðslu og það þarf að skoða með hvaða hætti er hægt að auka hana, t.d. úti í Vestmannaeyjum því að það skiptir miklu máli fyrir ferðaþjónustuna þar.