131. löggjafarþing — 81. fundur,  2. mars 2005.

Fíkniefni í fangelsum.

562. mál
[12:53]

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil einnig þakka hv. þm. Margréti Frímannsdóttur fyrir að taka þetta mál upp. Tölurnar sem hæstv. dómsmálaráðherra kom með, þ.e. að 60% fanga eigi við þennan vanda að stríða, eru vissulega háar en umræðan hefur einnig verið eins og að ekkert sé að gert og þróunin sé áfram á versta veg. Ég fagna því orðum hæstv. dómsmálaráðherra um að aðilar hafi virkilega tekið höndum saman og séu að ná árangri en það er vissulega langt í land. Ég fagna einnig frumvarpi hæstv. ráðherra sem virðist veita meira svigrúm til aðgerða og ég held að það sé mikilvægt að haldið sé áfram á þessari braut vegna þess að ástandið hefur verið erfitt en greinilegt er að það er margt gott gert.