Hollvinasamtök Ríkisútvarpsins.
Mörður Árnason (Sf):
Forseti. Þetta er frekar furðuleg fyrirspurn hjá hv. þingmanni. Hann hefði ósköp einfaldlega getað talað við formann þessara samtaka, sem starfar á okkar vinnustað, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, eins og hann réttilega tók fram. Fleiri í stjórn samtakanna eru Valgeir Sigurðsson rithöfundur, Anna Tryggvadóttir laganemi, Hörður Ásgeirsson tónlistarmaður og Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður.
Þótt maður leiti vel þá finnst þetta fólk ekki á framboðslistum hjá Frjálslynda flokknum. Ég tel þær fullyrðingar því alveg fáránlegar. Þetta er auðvitað bara tilraun Sigurðar Kára Kristjánssonar til að gera þessi samtök tortryggileg. Hann er sennilega ekki sammála þeirri breiðu stefnu sem þau hafa en eins og segir í Fréttabréfi frá samtökunum, sem ég hef í höndum, þá berjast þau m.a. gegn einkavæðingu Ríkisútvarpsins, sem hann berst fyrir.
Það sem hv. þingmaður ætti að spyrja um og best er að ég geri það fyrir hann, en það vekur tortryggni, er að það skuli engar upplýsingar koma frá hæstv. menntamálaráðherra sem svo sannarlega er í formlegum tengslum við Ríkisútvarpið. Menn vita ekki einu sinni hvaða menn eru í nefnd þeirri sem hún hefur verið að auglýsa í fjölmiðlunum, (Forseti hringir.) hvað þá hverju hún ætlar að skila eða hvenær.