Hollvinasamtök Ríkisútvarpsins.
Björgvin G. Sigurðsson (Sf):
Virðulegi forseti. Ég vildi nota tækifærið, fyrst málefni Hollvinasamtaka Ríkisútvarpsins eru tekin upp, og lýsa yfir aðdáun minni á því þverpólitíska grasrótarstarfi sem þar fer fram. Það er dapurlegt að reynt skuli að gera tilvist þeirra og öflugt starf tortryggilegt í þingsölum af því að þar er um að ræða aðdáunarverð samtök sem mættu verða fyrirmynd margra annarra samtaka. Þau hafa unnið mjög gott starf og staðið vörð um þann öfluga almannamiðil sem Ríkisútvarpið er og á að vera en er eins og bein í hálsi margra sjálfstæðismanna sem vilja einkavæða miðilinn og losa undan almannaeigu. Þar virðist hins vegar ekki ríkja mikil eining þar sem hæstv. menntamálaráðherra hefur ekki tekið undir hugmyndir hv. þingmanna Birgis Ármannssonar, Sigurðar Kára Kristjánssonar og Péturs Blöndals. Ég held að innanhússmál Sjálfstæðisflokks ættu nú að ræðast þar og leysast áður en þeir reyna að gera þau aðdáunarverð samtök á borð við Hollvinasamtökin tortryggileg í þingsölum.