Stuðningur Íslands við þjálfun írakskra öryggissveita.
Siv Friðleifsdóttir (F):
Virðulegur forseti. Ég hef fullan skilning á því að Vinstri grænir finni að því að við erum að fara í NATO-verkefni enda eru Vinstri grænir á móti NATO eins og allir vita. Ég átti hins vegar ekki von á því að Samfylkingin kæmi hér upp og gagnrýndi líka að við værum að fara í NATO-verkefni. Ég hélt að Samfylkingin styddi það almennt að við værum með í NATO.
Hér var sagt áðan að við hefðum ekki vit á þessu verkefni. Þetta er auðvitað algert bull. Við höfum vit á því að flytja vopn. Við höfum vit á því. Við höfum flutt alls kyns vörur með flugvélum okkar (Gripið fram í.) þannig að auðvitað höfum við vit á þessu. Við eigum að vera stolt af því að vera að aðstoða Íraka við að tryggja sitt eigið öryggi. Við eigum að bera höfuðið átt. Það er mjög mikilvægt að öryggi verði tryggt í Írak. Þar er lýðræðisþróunin að hefjast. Þar voru stórglæsilegar kosningar fyrir stuttu síðan. Reyndar er lýðræðisþróun að hefjast mjög víða í Arabaríkjunum. Við sjáum að stjórnin í Líbanon er farin frá. Hvað er að ske milli Palestínumanna og Ísraelsmanna? Miklu jákvæðari tónn en við höfum nokkurn tímann orðið vitni að.
Hvað er að ske í Egyptalandi? Forsetinn þar segir að það eigi að kjósa um forseta þar bráðlega þar sem verða fleiri en einn í boði. Það hefur ekki gerst í 50 ár. Hvað skeði í Sádi-Arabíu um daginn? Þar voru sveitarstjórnarkosningar í fyrsta skipti. Reyndar máttu konurnar ekki kjósa en karlarnir kusu, og vonandi kjósa konurnar næst.
Virðulegur forseti. Ég tel að við eigum að gera það sem í okkar valdi stendur til að aðstoða Íraka við að tryggja sitt eigið öryggi og stuðla að lýðræðisþróun þar. Þetta verkefni sem hér er rætt um er einmitt af þeim toga. Það er alveg öruggt að arabaþjóðirnar munu feta sig í átt til lýðræðis. Við sjáum bara hvað skeði austan tjalds. Berlínarmúrinn féll 1989, Sovétríkin 1991, ríkin eru að rísa upp í kringum okkur í átt að lýðræði. Það mun líka ske í arabaheiminum og ég virði það, virðulegur forseti, að Vinstri grænir eru á móti en ég skil ekkert í Samfylkingunni.