131. löggjafarþing — 83. fundur,  3. mars 2005.

Sala Símans og grunnnetið.

[10:38]

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Á góðri stundu, á flokksþingum og öðrum ráðstefnum er iðulega talað um gildi þess að virða lýðræðislegan rétt. Það er stundum talað um þjóðaratkvæðagreiðslu og gildi hennar. Þegar á reynir er hins vegar annað upp á teningnum. Það er engu líkara en sú ríkisstjórn sem nú stjórnar landinu njóti þess að beita valdi.

Það hefur komið fram ítrekað í skoðanakönnunum og verið rækilega rakið af hv. málshefjanda Jóni Bjarnasyni alþingismanni að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar er andvígur því að Síminn verði seldur. Þetta kemur ítrekað fram í skoðanakönnunum og þrátt fyrir gylliboð, að vísu misvísandi eftir því hvort það kemur frá formanni Framsóknarflokksins eða formanni Sjálfstæðisflokksins, um hvað eigi að gera við hagnaðinn er niðurstaðan engu að síður þessi. Við höfum hins vegar sagt í stjórnarandstöðunni og sérstaklega í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði sem ekki viljum selja Símann: Notum arðinn af þessari stofnun, sem verður fyrirsjáanlega mikill um ókominn tíma, til að ráðast í samfélagslega uppbyggingu án þess að selja frá okkur Landssímann sem gefur okkur þennan arð.

Hæstv. forsætisráðherra vísar í sérfræðinga. Þar eru deildar meiningar. Hann vísar einnig til þess að reynt hafi verið að koma á samrekstri um grunnnet. Á það hefur ekki verið látið reyna. Það skortir pólitískar yfirlýsingar af hálfu stjórnvalda hvað þetta snertir og í þá veru sem þjóðin er að kalla eftir. Þess vegna óskum við eftir því að þessum söluáformum verði slegið á frest og menn setjist yfir það þverpólitískt að ná sátt í þessu máli um lausn sem kemur til með að gagnast samfélaginu öllu. Það er krafa okkar .