131. löggjafarþing — 83. fundur,  3. mars 2005.

Norræna ráðherranefndin 2004.

516. mál
[12:54]

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Ég vildi gera aðeins að umtalsefni að ein yfirskrift þessarar skýrslu er lýðræði. Norðurlandaþjóðirnar hafa um langt árabil vísað veginn hvað varðar þróun og lýðræði almennt, völd fólks í landi sínu og aðgengi að áhrifum yfir því. Þau hafa að mörgu leyti verið merkisberar raunverulegs lýðræðis í heiminum og þá á ég við bæði hvað varðar aðgengi almennings að því að kalla mál til þjóðaratkvæðis, aðgengi að beinu lýðræði, og þróun beins lýðræðis á Norðurlöndunum sem er víðast hvar töluvert lengra á veg komið en hér á landi þar sem það er svo vanþróað og vannýtt fyrirbæri að fáheyrt er og eiginlega alveg með ólíkindum.

Við munum öll umræðuna frá því í fyrrasumar eftir synjun forseta Íslands um staðfestingu á fjölmiðlalögunum. Þegar ljóst var að þjóðin fengi að kjósa beint og milliliðalaust um fjölmiðlalögin þá varð uppi þvílíkt uppþot og uppnám og ástand á stjórnarheimilinu að það mátti halda að heimsendir væri í nánd, en það var bara þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem fólk fengi að ráða beint og milliliðalaust.

Það var annars vegar þetta og hins vegar það að á meðan atkvæðisrétturinn er ekki jafn, á meðan ekki vega öll atkvæði Íslendinga jafnþungt er ekki hægt að tala um raunverulegt lýðræði. Raunverulegt lýðræði felst að mínu mati í því að einn maður hefur eitt atkvæði. Allt ójafnvægi á atkvæðavæginu, alveg sama út frá hvaða sjónarmiði, er einfaldlega ranglátt. Það skekkir lýðræðið og kemur í veg fyrir að við getum talað um raunverulegt grundvallarlýðræði. Þessu tvennu verður að breyta í stjórnarskrá Íslands til að við getum talist í fararbroddi og á heimsmælikvarða hvað varðar lýðræði og þróun lýðræðis, þ.e. annars vegar það að tiltekinn hluti atkvæðisbærra manna geti kallað mál í þjóðaratkvæði beint og milliliðalaust og hins vegar það að landið verði gert að einu kjördæmi og atkvæðisréttur allra Íslendinga jafnaður til fulls. Það er algjört grundvallaratriði ef við eigum að teljast til forusturíkja á vettvangi lýðræðismála. Við eigum að vera forusturíki á vettvangi lýðræðismála og það er þar sem við eigum m.a. að beina áhrifum okkar og kröftum í Norðurlandasamstarfinu, sem er að mínu mati merkilegt samstarf sem á ekki bara rétt á sér heldur felst í því mikill ávinningur fyrir Íslendinga, bæði hvað varðar pólitíska aðkomu að hinu og þessu og eins er varðar ýmiss konar hugmyndafræði, mannréttindabætur og lýðfrelsisbætur. Þessu þarf að breyta hér.

Af því að hæstv. ráðherra flutti hér skýrslu sína og við erum að ræða hana og þá miklu yfirskrift sem yfir henni hvílir, og lýðræðismálin eru risastór málaflokkur, þá vantar mjög mikið upp á það, eins og ég sagði áðan, að við göngum þannig fram í lýðræðisháttum okkar að sómi geti talist að eða að um raunverulegt grundvallarlýðræði sé að ræða. Lýðræðið sem við búum við er skekkt og afbakað og til að breyta því verður það í fyrsta lagi að gerast að öll atkvæði Íslendinga verði jafngild, einn maður – eitt atkvæði, og í öðru lagi að við tryggjum aðgengi almennings að beinu lýðræði. Að við eflum beint lýðræði, beint og milliliðalaust lýðræði sem verði notað þannig að stærstu málin, meginmálin, sé vilji þjóðarinnar sá, fari í þjóðaratkvæði. Við erum að sjálfsögðu ekki að tala um öfgana sem felast í eilífum þjóðaratkvæðagreiðslum eða atkvæðagreiðslum innan sveitarfélaga þar sem fólk verður leitt á forminu og hættir að mæta á kjörstað. Við erum að tala um vandaðar og yfirvegaðar atkvæðagreiðslur á meðal þjóðarinnar eða innan sveitarfélaga um einstök stór meginmál, einstöku sinnum, nokkrum sinnum á ári, einu sinni á ári. Það kemur í ljós. Við eigum að vísa veginn fram á við hvað varðar þróun beins og milliliðalauss lýðræðis og við verðum að jafna atkvæðaréttinn til fulls.

Að mínu viti er það stærsta verkefnið sem stjórnarskrárnefndin stendur frammi fyrir að tryggja að við næstu stjórnarskrárbreytingar verði gengið þannig fram að atkvæði allra Íslendinga vegi jafnþungt og að landið verði gert að einu kjördæmi. Það rakalitla fyrirbæri sem felst í hinni nýju kjördæmaskipan reynist að mínu mati ekki vel og hefði verið miklu nær að ganga skrefið til fulls og gera landið strax að einu kjördæmi og jafna þannig atkvæðaréttinn í stað þess að réttlæta misvægi atkvæða á forsendum byggðamála.

Við eigum að sjálfsögðu að standa vörð um hagsmuni byggðanna og rétta hlut þeirra byggða sem halloka fara, en það er gert með allt öðrum hætti, allt öðrum og beinni aðgerðum en að ganga á mannréttindi annarra Íslendinga því jafn atkvæðaréttur er spurning um mannréttindi. Það eru mannréttindi að atkvæði allra Íslendinga vegi jafnþungt.

Því vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra í lokin hvort hún muni ekki beita sér fyrir því að til að Ísland uppfylli skyldur sínar og verði tekið alvarlega á vettvangi lýðræðismála og geti verið forustuafl, forustuland á vettvangi lýðræðismála, sé meginverkefni okkar að þetta tvennt komi til, öll atkvæði vegi jafnþungt, landið verði gert að einu kjördæmi og réttur borgaranna til að kalla til þjóðaratkvæðagreiðslu verði settur í stjórnarskrá og fyrstu skrefin þannig stigin í átt til beinna og betra lýðræðis.