Norrænt samstarf 2004.
Drífa Hjartardóttir (S):
Hæstv. forseti. Ég kynni hér í forföllum formanns skýrslu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um norrænt samstarf árið 2004. Skýrslan er að venju yfirgripsmikil og greinir frá víðfeðmu samstarfi sem fram fer á vettvangi Norðurlandaráðs. Að öðru leyti vísa ég til skýrslunnar í heild á þskj. 830, sem er einnig nokkuð ítarleg umfjöllun um störf Íslandsdeildarinnar. Í þeirri skýrslu er fjallað um störfin, starfsemi nefnda Norðurlandaráðs, fundi ráðsins, sameiginlega fundi með Eystrasaltsráðinu og Norðurlandaráðsþing. Í skýrslunni er einnig fjallað um skipan ráðsins og fyrirkomulag á starfsemi og samstarfi ráðsins og ráðherranefndarinnar.
Í upphafi starfsársins 2004 skipuðu Íslandsdeildina Jónína Bjartmarz, formaður, Rannveig Guðmundsdóttir, varaformaður, Drífa Hjartardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Steingrímur Jóhann Sigfússon og Sigurður Kári Kristjánsson. Þann 28. janúar var sú breyting gerð að Arnbjörg Sveinsdóttir tók sæti varamanns í stað Þorgerðar Katrínar. Gunnarsdóttur.
Ný Íslandsdeild var kosin 1. október við upphaf 131. þings. Ein breyting var á skipan aðalmanna þar sem Arnbjörg Sveinsdóttir tók við af Sigríði Önnu Þórðardóttur og á fundi Íslandsdeildar þann 7. október var Jónína Bjartmarz kjörin formaður Íslandsdeildar og Drífa Hjartardóttir varaformaður. Stígur Stefánsson alþjóðaritari gegndi starfi ritara Íslandsdeildar Norðurlandaráðs á starfsárinu 2004.
Hæstv. forseti. Íslandsdeild Norðurlandaráðs kom saman til fundar fimm sinnum á árinu. Að venju var þátttaka í fundum, þemaráðstefnu og þingi Norðurlandaráðs undirbúin en þar að auki voru fjöldamörg mál á dagskrá, svo og gagnkvæm upplýsingaskipti meðlima Íslandsdeildar um stöðu mála í einstökum nefndum og vinnuhópum Norðurlandaráðs. Þá voru febrúarfundir Norðurlandaráðs sem fram fóru í Reykjavík undirbúnir. Töluvert var rætt um eftirfylgni við tilmæli Norðurlandaráðs en eftir breytingarnar á skipulagi ráðsins sem tóku gildi 1. janúar 2002 hefur verið lögð áhersla á nánari tengsl við þing ríkjanna og hlutverk landsdeilda við að fylgja tilmælum eftir heima í héraði. Voru tilmæli Norðurlandaráðs send til viðkomandi fastanefnda Alþingis. Hugmyndin að baki þessari ráðstöfun er sú að fastanefndirnar fái tilmælin til upplýsingar og geti jafnframt fylgt þeim eftir í löggjafarstarfi þegar við á. Þá var á fundum Íslandsdeildar rætt um skipan meðlima Íslandsdeildar í nefndir Norðurlandaráðs og nauðsyn þess að Íslandsdeild fengi fulltrúa í sem flestum af hinum fimm málefnanefndum Norðurlandaráðs. Framboðsmál Íslandsdeildar til forseta og varaforseta Norðurlandaráðs árið 2005 voru rædd á fundi Íslandsdeildar í september og var samþykkt samhljóða að Rannveig Guðmundsdóttir yrði forsetaefni og Jónína Bjartmarz varaforsetaefni. Rannveig Guðmundsdóttir var síðan kjörin forseti Norðurlandaráðs á 56. þingi ráðsins í sænska þinginu Ríkisdeginum þann 3. nóvember.
Íslandsdeildin hélt einn fund með Valgerði Sverrisdóttur, samstarfsráðherra Norðurlanda, og fór hann fram í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu 11. október. Fundurinn var haldinn í aðdraganda 56. Norðurlandaráðsþings og var þingið sjálft, formennska Íslands innan Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2004, og áherslur í starfsáætlun Norðurlandaráðs árið 2005 helstu umræðuefnin.
Íslandsdeild þáði boð Norðurlandaráðs um að senda þingmenn á ýmsar alþjóðaráðstefnur fyrir hönd ráðsins á starfsárinu 2004. Sóttu íslenskir þingmenn þær ráðstefnur sem meðlimir sérstakra sendinefnda Norðurlandaráðs. Á meðal þeirra viðburða sem þingmenn Íslandsdeildar sóttu má nefna Eystrasaltsráðstefnuna í Bergen, Þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál í Nuuk, Norræna daga í þýska þinginu í Berlín og Eystrasaltsþingið í Ríga. Þingmenn Íslandsdeildar sóttu einnig ráðstefnur á vegum sinna nefnda í Norðurlandaráði og er þess skilmerkilega getið í ársskýrslunni.
Málefnastarf Norðurlandaráðs fer að mestu fram í fimm málefnanefndum auk forsætisnefndar. Hvað Íslandsdeildina varðar var kosið í nefndir fyrir starfsárið 2004 á 55. þingi Norðurlandaráðs í Ósló og varð nefndarseta Íslandsdeildar sem hér segir: Rannveig Guðmundsdóttir og Jónína Bjartmarz sátu í forsætisnefnd. Í efnahags- og viðskiptanefnd sátu sú sem hér stendur sem formaður og Steingrímur Jóhann Sigfússon sem varaformaður. Sigríður Anna Þórðardóttir sat í velferðarnefnd. Í umhverfis- og náttúruauðlindanefnd áttu sæti Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Sigurður Kári Kristjánsson og var hann jafnframt varaformaður nefndarinnar. Sigurður Kári Kristjánsson sat einnig í eftirlitsnefnd. Þegar Arnbjörg Sveinsdóttir tók sæti í Íslandsdeildinni í stað Sigríðar Önnu Þórðardóttur tók hún jafnframt sæti Sigríðar Önnu Þórðardóttur í velferðarnefnd.
Hæstv. forseti. Vil ég nú víkja máli mínu stuttlega að störfum efnahags- og viðskiptanefndarinnar sem sú sem hér stendur veitir formennsku. Efnahags- og viðskiptanefnd annast málefni sem varða efnahags- og framleiðsluskilyrði, atvinnulíf, innri markað Norðurlanda, frjálsa fólksflutninga, afnám landamærahindrana, viðskipti, byggðastefnu, atvinnumál og vinnumarkað, vinnuvernd, innra skipulag, samgöngur og upplýsingatækni.
Á starfsárinu vann nefndin tillögur um norræna skattstofu, opinn hugbúnað og opna hugbúnaðarstaðla í upplýsingatæknistefnu Norðurlanda. Einnig vann nefndin tillögu um norræna skattaráðstefnu sem beindi sjónum að lausn vandamála og hindrana sem einstaklingar og fyrirtæki mæta vegna mismunandi skattalöggjafar á Norðurlöndum. Þá vann nefndin tillögu um að halda sameiginlega vinnumarkaðsráðstefnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna en aðild Eystrasaltsríkjanna að ESB mun auka mjög flæði á milli vinnumarkaða þessara landa. Þeirri ráðstefnu er ætlað að vera framhald á ráðstefnu um vinnumarkaðssamstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna sem haldin var í Stokkhólmi 31. ágúst og sú sem hér stendur og Steingrímur Sigfússon sóttu fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar.
Í samræmi við áherslur Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar á málefni Vestur-Norðurlanda árið 2004 ákvað efnahags- og viðskiptanefnd að helga sumarfund sinn vestnorrænum málum, sér í lagi samgöngu- og byggðamálum. Sumarferð nefndarinnar var farin til Færeyja og Íslands 10.–14. ágúst. Átti nefndin mjög gagnlega fundi í báðum löndunum og kynnti sér m.a. stöðu fjarskiptamála í Færeyjum, lagningu neðansjávarjarðganga á milli færeysku eyjanna og stöðu farþegasamgangna á sjó. Farið var síðan með ferjunni Norrænu til Íslands. Eftir komuna til Seyðisfjarðar voru virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka skoðaðar. Á Akureyri var Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri heimsótt. Nefndarmenn kynntu sér drög að úttekt á flug- og skipasamgöngum á Vestur-Norðurlöndum sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina að frumkvæði íslensku formennskunnar. Þá var fjallað um norræna úttekt á stöðu atvinnumarkaða á norrænum jaðarsvæðum og samanburðarrannsóknir á starfsskilyrðum smárra sveitarfélaga á Íslandi, Færeyjum og Álandseyjum. Efnahags- og viðskiptanefnd heimsótti einnig Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri. Þess má geta að sumarferð í þessari nefnd verður farin til Grænlands á næsta ári og verður það í framhaldi af þessum vestnorræna vinkli sem nefndin er að huga að.
Íslandsdeildin tók að venju mjög virkan þátt í sameiginlegum fundum Norðurlandaráðs, þemaráðstefnunni sem haldin var hér á landi og síðast en ekki síst Norðurlandaráðsþinginu í Ósló. Ekki er tími til að fara ofan í saumana á því sem þar fór fram en hins vegar er aftur vísað til ársskýrslunnar sem veitir afar góðar upplýsingar um þær pólitísku umræður og störf er fram fóru á þinginu.
Hæstv. forseti. Mig langar til að ljúka framsögu þessari á því að ítreka það sem hér hefur áður komið fram að þrátt fyrir afar umfangsmiklar breytingar á alþjóðavettvangi á undanförnum árum og sér í lagi fjölþjóðlegri stofnanaskipan í Evrópu hefur mikilvægi norræns samstarfs síst minnkað á síðustu árum. Fullyrða má að mikilvægi norræns samstarfs sé enn ríkara á tímum örra breytinga en þegar stöðugleiki ríkir í alþjóðamálum. Ástæðan er einföld. Norðurlandasamstarfið er rauði þráðurinn í hagsmunagæslu Íslendinga á erlendri grundu. Í því ljósi er rík nauðsyn að hlúa vel að þeim farsælu og hagsælu samskiptum sem við höfum átt við bræðra- og systraþjóðir okkar á þeim vettvangi. Hef ég áður sagt að Norðurlandasamstarfið er heimahöfn okkar í alþjóðamálum. Þaðan gerum við út þegar við þurfum að gæta hagsmuna okkar. Þetta á ekki síst við nú um stundir þegar viðvarandi útrás íslenskra fyrirtækja, fjármagns og viðskiptahugmynda á sér stað. Í því tilliti er vert að undirstrika að á þessu ári verður gerð á vettvangi norræns samstarfs sérstök úttekt á landamærahindrunum í atvinnulífi á milli Norðurlandanna. Þrátt fyrir að viðskipti fyrirtækja séu mun auðveldari innan Norðurlanda en til að mynda á Evrópska efnahagssvæðinu er markmið norrænna stjórnmálamanna að gera Norðurlönd að einu markaðssvæði í reynd. Í ljósi þess hve Norðurlandaþjóðirnar eru smáar er einkar mikilvægt að tryggja atvinnulífi þeirra sem best skilyrði en stærri heimamarkaður, norrænn heimamarkaður, mundi styrkja samkeppnisstöðu þeirra til muna, bæði innan Evrópu og utan.
Að lokum vil ég, hæstv. forseti, minna á að Ísland á glæsilegan forseta Norðurlandaráðs sem veitir ráðinu afar farsæla forustu. Ég minni einnig á að nú stendur yfir undirbúningur Norðurlandaráðsþings sem haldið verður hér á landi í lok októbermánaðar. Ég er fullviss um að þingið verði í alla staði hið glæsilegasta og að það muni undirstrika mikilvægi norræns samstarfs. Þá vil ég geta þess að í næstu viku, 8. mars, á alþjóðabaráttudegi kvenna verður fundur haldinn um jafnréttismál á vegum forsætisnefndar Norðurlandaráðs.