131. löggjafarþing — 84. fundur,  7. mars 2005.

Almenn hegningarlög.

72. mál
[19:04]

Flm. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum sem lýtur að því að afnema fyrningarfresti í kynferðisafbrotum gegn börnum.

Þetta lagafrumvarp var lagt fram á síðasta þingi en fékk ekki afgreiðslu í allsherjarnefnd. Frumvarpið var sent út til umsagnar og fékk vægast sagt góðar undirtektir.

Umboðsmaður barna lýsti m.a. yfir stuðningi við frumvarpið í umsögn sinni 30. mars 2004. Með þessu frumvarpi er því farið eftir tilmælum umboðsmanns barna. Barnaverndarstofa styður frumvarpið eindregið og barnaverndarnefnd Reykjavíkur fagnar því og telur nauðsynlegt að afnema fyrningarfresti vegna kynferðisafbrota gegn börnum. Stjórn Barnaheilla fagnar sömuleiðis frumvarpinu í sinni umsögn. Samtök um kvennaathvarf hvöttu til þess að frumvarpið yrði samþykkt og telur Femínistafélag Íslands einnig að afnema eigi þessa fyrningarfresti. Mannréttindaskrifstofa Íslands telur í umsögn sinni að sterkar röksemdir séu fyrir samþykkt þessa frumvarps.

Átakshópurinn Blátt áfram er verkefni unnið í samvinnu við Ungmennafélag Íslands og felst í að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Á heimasíðu þessa hóps, blattafram.is, er fólk hvatt til að senda ráðherrum og þingmönnum bréf með áskorun um að þeir samþykki frumvarpið.

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins skrifaði 7. febrúar 2004 að frumvarpið væri, með leyfi forseta, ,,án efa mikilvægt skref í þá átt að koma lögum yfir sem flesta þeirra sem gerst hafa sekir um jafnalvarlegan og afdrifaríkan glæp og að beita börn kynferðisofbeldi“. Þar var einnig sagt, með leyfi forseta:

,,Fyrningarfrestir, eins og þeim er nú háttað, eru iðulega of skammir fyrir þennan viðkvæma hóp brotaþola, sem oft áttar sig ekki á brotinu eða treystir sér til að kæra það fyrr en langt er um liðið. Dómar þar sem einstaklingar hafa verið sýknaðir fyrir kynferðisafbrot gegn börnum, þrátt fyrir að sekt þeirra hafi verið sönnuð, eru staðfesting á því.“

Kynferðisafbrot gegn börnum eru í eðli sínu ólík öðrum ofbeldisbrotum og er nauðsynlegt að viðurkenna þá sérstöðu þessara brota. Sakir sérstöðu slíkra brota vilja flutningsmenn afnema fyrningarfrest brota í 194.–202. gr. almennra hegningarlaga sem framin eru gegn einstaklingum yngri en 14 ára.

Aðstöðumunur geranda og þolanda er eðli máls samkvæmt gríðarlegur. Brotaþoli er hvorki í aðstöðu til að skynja að um lögbrot sé að ræða né þekkir hann leiðir til að losna undan oki gerandans. Þolandinn í þessum málum áttar sig e.t.v. ekki fyrr en mörgum árum síðar á því að brotið hafi verið gegn honum eða bælir minninguna um ofbeldið í langan tíma niður og telur sig jafnvel bera einhverja sök sjálfur. Þess vegna geta liðið mörg ár og jafnvel áratugir þar til kæra er lögð fram í slíkum málum. Gerandinn á ekki að hagnast á þeim mikla aðstöðumun sem er á honum og brotaþola. Oft koma þessi brot ekki fram í dagsljósið fyrr en mörgum árum eftir að þau voru framin og jafnvel ekki fyrr en brotaþolarnir hafa náð fullorðinsaldri. Þetta á ekki síst við þegar brotamaður er í fjölskyldutengslum við brotaþola.

Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2003 líður oft mjög langur tími frá því að brot gegn barni er framið þar til viðkomandi brotaþoli er reiðubúinn að ræða málið og leita sér aðstoðar. Tæplega 50% þeirra sem leituðu til Stígamóta höfðu orðið fyrir kynferðisbroti á aldrinum 0–10 ára en tæplega 70% voru á aldrinum 0–15 ára. Sé hins vegar litið á hvenær fólk leitar sér aðstoðar hjá Stígamótum kemur í ljós að rúmlega 40% eru 30 ára eða eldri. Samkvæmt núverandi fyrningarreglum eru öll kynferðisafbrot gegn barni sem er 14 ára eða yngra fyrnd þegar viðkomandi fórnarlamb eða þolandi hefur náð 29 ára aldri.

Önnur 40% þeirra sem leita til Stígamóta eru á aldursbilinu 19–29 ára en sé um kynferðisbrot gegn barni að ræða eru sum slík brot fyrnd þar sem fyrningarfrestir vegna þeirra eru frá 5 árum til 15 ára og byrjar fresturinn að líða á 14 ára afmæli brotaþolans. Ljóst er því að fyrningarfrestir eru of skammir fyrir stóran hóp brotaþola. Dómar þar sem menn hafa verið sýknaðir fyrir kynferðisbrot gegn börnum, jafnvel þótt sekt hafi verið sönnuð, staðfesta þetta. Minnast má nýlegs dóms frá Hæstarétti þegar ljóst var að viðkomandi gerandi hafði játað mjög gróft brot en fékk sýknun vegna fyrningar.

Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta bárust einungis um 8% af þeim málum sem komu til kasta Stígamóta til opinberra aðila. Í skýrslunni er tekið fram að gildandi fyrningarreglur eru ein af ástæðunum fyrir því að svo fá mál komast til umfjöllunar opinberra aðila.

Flutningsmenn telja að rétt sé að miða við 14 ára aldur í ljósi þeirrar staðreyndar að skv. 202. gr. almennra hegningarlaga eru lögleg aldursmörk samræðis og annarra kynferðismaka miðuð við 14 ára aldur. Þær röksemdir sem eru að baki sérstöðu þessara brotaþola eiga sömuleiðis fyrst og fremst við einstaklinga undir 14 ára aldri fremur en brotaþola á aldursbilinu 14–18 ára. Þolendur á aldrinum 14–18 ára eru yfirleitt í mun betri aðstöðu til að skilja að um brot sé að ræða og jafnframt líklegri til að þekkja þau úrræði sem þolendum kynferðisbrota bjóðast en brotaþoli sem er yngri en 14 ára. Brotaþolar á aldrinum 14–18 ára njóta því áfram sömu fyrningarfresta og fullorðnir verði frumvarpið samþykkt óbreytt.

Í núverandi refsilöggjöf fer lengd fyrningarfrests eftir lengd hámarksrefsingar sem lögð er við viðkomandi broti. Aðeins þeir glæpir þar sem hámarksrefsing er ævilangt fangelsi fyrnast aldrei skv. IX. kafla almennra hegningarlaga. Þar má nefna landráð, brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum, hryðjuverk, manndráp, mannrán skv. 226. gr. og ítrekuð rán skv. 255. gr.

Eins og komið hefur fram fyrnast kynferðisbrot gegn börnum frá 5 árum til 15 ára og fer lengd fyrningarfrestsins eftir alvarleika brotsins. Í núgildandi ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga segir að fyrningarfrestur vegna brota samkvæmt ákvæðum 194.–202. gr. teljist ekki fyrr en frá þeim degi er brotaþoli nær 14 ára aldri. Fyrningarfrestur telst því frá þeim degi er refsiverðum verknaði lauk nema brotaþoli hafi ekki náð 14 ára aldri en þá telst fresturinn frá þeim degi er brotaþoli nær þeim aldri.

Þetta ákvæði var lögfest árið 1998 í kjölfar tillögu þingmanna jafnaðarmanna um að fyrningarfrestur brota á 200., 201. og 202. gr. laganna hæfist ekki fyrr en þolandi brots hefði náð sjálfræðisaldri. Þótt bót hafi orðið með lögfestingu þessa ákvæðis telja flutningsmenn að dómar og tölfræði um aldur brotaþola þegar hann leitar sér hjálpar sýni að ekki er nóg að gert. Því er lagt til í frumvarpi þessu að fyrning kynferðisbrota gegn börnum undir 14 ára aldri verði afnumin með öllu í ljósi sérstöðu þessara brota og hagsmuna barna á þessum aldri.

Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að löggjafinn hefur nú þegar tekið þá pólitísku ákvörðun að hafa sum afbrot ófyrnanleg, t.d. ítrekuð rán, mannrán og manndráp.

Í norrænum rétti hefur verið gengið út frá því að brot geti verið ófyrnanleg þegar um er ræða alvarlegustu brotin samkvæmt refsimati löggjafans. Flutningsmenn telja að kynferðisafbrot gegn börnum eigi heima í flokki alvarlegustu afbrota hvað varðar fyrningu. Hugtakið fyrning í refsirétti felur í sér að réttur ríkisvaldsins til að koma fram refsingu eða öðrum viðurlögum fellur niður að ákveðnum tíma liðnum. Fyrning getur verið af tvennum toga, fyrning sakar og fyrning refsingar. Til eru margs konar röksemdir fyrir reglum um fyrningu, svo sem hagkvæmnis- og sanngirnisrök, auk þess sem það liggur í hlutarins eðli að erfiðara verður að sanna brot eftir því sem lengri tími líður frá framningu þess.

Það getur hins vegar ekki talist vera sjálfstæð röksemd gegn afnámi fyrningarfrests vegna kynferðisafbrota gegn börnum undir 14 ára aldri að erfiðara verður að sanna brotið eftir því sem lengri tími líður. Sönnun í slíkum málum hefur hingað til verið erfið og verður erfið þrátt fyrir afnám fyrningarfrests. Sönnunarbyrðin verður eftir sem áður á ábyrgð hins opinbera ákæruvalds, sbr. 45. gr. laga um meðferð opinberra mála, sem metur hvort það sem fram er komið sé nægilegt eða líklegt til sakfellis, sbr. 112. gr. sömu laga. Hins vegar má telja að sú vitneskja að sönnun verði erfiðari eftir því sem lengri tími líður hvetji brotaþola til að leita úrræða sem fyrst en dragi það ekki í óþarflega langan tíma.

Jafnframt verður það að teljast hæpin röksemd gegn afnámi fyrningarfrests að slíkir frestir virki sem aðhald fyrir rannsóknaraðila og ákæruvald um hröð vinnubrögð. Brotaþoli undir 14 ára aldri á ekki að líða fyrir slíkt markmið fyrningarreglna. Sömuleiðis er nú þegar lagalegur áskilnaður um málshraða á rannsóknaraðilum og ákæruvaldinu.

Flutningsmenn telja að sérstaða kynferðisbrota gegn börnum undir 14 ára aldri og hagsmunir þeirra vegi einfaldlega þyngra en þau hagkvæmnis- og sanngirnisrök sem búa almennt að baki reglum um fyrningarfrest. Flutningsmenn álíta rangt að kynferðisbrot gegn börnum geti fyrnst. Vegna eðlis og sérstöðu þessara brota verður að telja að með fyrningarfresti á slíkum brotum sé börnum ekki tryggð nægjanleg réttarvernd og réttlæti samkvæmt lögum.

Eftir þessa umræðu legg ég til að þessu frumvarpi verði vísað til hv. allsherjarnefndar og þaðan til 2. umr.