131. löggjafarþing — 87. fundur,  10. mars 2005.

Breyting á IX. viðauka við EES-samninginn.

434. mál
[11:53]

Rannveig Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Formaður utanríkismálanefndar mælir hér fyrir nokkrum nefndarálitum í málum sem hafa verið tekin til umfjöllunar í utanríkismálanefnd þar sem ég á sæti. Ég vil taka fram þar sem ég var fjarri vinnslu þessara mála vegna starfa á vegum Alþingis, að ég styð þessi mál sem nú eru til afgreiðslu eins og aðrir fulltrúar Samfylkingarinnar í hæstv. utanríkismálanefnd.