131. löggjafarþing — 87. fundur,  10. mars 2005.

Kosningar til Alþingis.

70. mál
[12:27]

Flm. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Með röksemdafærslu af þessu tagi finnst mér menn vera að seilast um hurð til lokunnar. Mér finnst eins og hv. þingmaður sé að reyna að tína til fjarstæðukennd dæmi til að varpa rýrð á málskotsréttinn. Ég er honum algerlega ósammála um að staða sem þessi gæti komið upp. Ég vísa til þess að þetta ákvæði hefur ekki verið notað nema einu sinni í allri sögu lýðveldisins. Og ég vísa t.d. til þess að það er að nokkru leyti sambærilegt, að það er svona ákvæði í Danmörku sem er þannig að minni hluti danska þingsins, þriðjungur þingmanna, getur vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu lagafrumvarpi sem þingið hefur samþykkt innan fimm daga frá samþykkt þess. Ef hv. þingmaður skoðaði hvernig það hefur verið notað kæmist hann að raun um að það er ákaflega spart farið með rétt af þess tagi. Hvers vegna? Vegna þess að sá minni hluti á þingi sem færi ósparlega með slíkt dæmdi sig fljótt ótrúverðugan.

Forseti sem beitti, eins og hv. þingmaður orðaði það, málskotsrétti „í gríð og erg“ mundi mjög fljótt missa trúverðugleika og traust og þegar í stað ef um væri að ræða einhver minni háttar mál sem þjóðin skiptir sér ekki af eða teldi í lagi eða teldi ekki skipta máli. Ég held að slíkur forseti ætti ekki langa eða farsæla daga fyrir höndum í forsetatíð sinni. Ég vísa til þess að þingið hefur samkvæmt stjórnarskrá ákveðinn rétt í þessu máli líka. Ég bendi hv. þingmanni á 11. gr. stjórnarskrárinnar þar sem talað er um að þrír fjórðu hlutar alþingismanna geti veitt lögkjörnum forseta lausn frá störfum áður en tími hans er útrunninn ef eitthvað gerist. Ég tel að við svona aðstæður hlyti slíkt að koma upp.