Framtíðaruppbygging bráðaþjónustu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):
Virðulegi forseti. Þegar litið er yfir málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og sagan skoðuð í samhengi sér maður fljótt ástæðu til að undrast hvað hlutirnir í þessum málum gerast hægt. Það er eins og það hafi verið eilífur vandræðagangur í mörg undanfarin ár með Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þegar gagnasöfn yfir fréttir eru skoðuð, endalaus vandræðagangur. Ég verð að segja að það er ekki alltaf auðvelt að átta sig á því hvað eru orsakir og hvað afleiðingar í þessi ferli.
Sú umræða sem hér er fram komin er góðra gjalda verð og ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni, málshefjanda, fyrir að hafa vakið athygli á málinu. Ég fagna því sömuleiðis að ráðherra virðist hafa hér uppi góð og fögur orð um að úrbætur verði gerðar en ég kemst þó ekki hjá því að minnast svara hæstv. heilbrigðisráðherra í umræðu um fyrirspurn sem ég varpaði til hans um daginn, um málefni sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. Þar einkenndist svarið ansi mikið af frösum á borð við „verið væri“, „verði hugsanlega tekið upp“ o.s.frv., allt í hálfgerðum véfréttastíl.
Ég vona svo sannarlega að þessi umræða verði þrátt fyrir allt til þess að hæstv. heilbrigðisráðherra taki sér tak, færi öll þessi mál af hraða snigilsins og að við fáum von bráðar að sjá varanlega lausn á vandamálum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Það er gersamlega óþolandi að svo fjölmennt svæði eins og hv. þm. Jón Gunnarsson benti réttilega á, 17 þús. manns plús allir ferðamenn til og frá landinu, skuli búa við þetta ófremdarástand.