Framtíðaruppbygging bráðaþjónustu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):
Virðulegi forseti. Ég þakka þær umræður sem hér hafa farið fram um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Ég tek jafnframt fram og vil láta það koma fram úr þessum ræðustól að starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur unnið mjög gott starf. Málefnin þar eru í framþróun og þjónustan hefur aukist síðustu árin.
Til að fyrirbyggja allan misskilning varðandi kostnaðartölur vil ég undirstrika að það sem við erum að tala um í raun er um hálfur milljarður í framkvæmdir við að færa skurðstofurnar og gera það sem gera þarf á stofnuninni og 40 millj. ef tryggja ætti vaktir um helgar. Núna eru vaktir í miðri viku.
Ég vil taka það fram að ég svaraði því hvort ég teldi þessar vaktir nauðsynlegar. Ég hef svarað því með því að skrifa undir þá framtíðarsýn sem fyrirspyrjandi gat um í upphafi. Hins vegar er ekki búið að tryggja fjármuni til framkvæmda þarna enn þá, eins og hefur réttilega komið fram í umræðunni, og við erum að vinna að því.
Svo vil ég endurtaka það að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er ekki svelt fjárhagslega, við höfum lagt fram mikla fjármuni til rekstrar og stofnunin er í sókn þrátt fyrir að þar hafi ýmislegt á gengið í gegnum tíðina. Ekki ætla ég að neita því, en stofnunin er í sókn.
Varðandi svo samstarf spítalanna á þessu svæði — ég ætla ekki að fara að munnhöggvast um flugvöllinn — finnst mér að þessi spítali hér í kraganum þurfi að hafa gott samstarf og sérhæfa sig (Forseti hringir.) og það er ekki verið að tala um að gelda þá, heldur að þeir hafi gott samstarf um þá þjónustu sem þeim ber að veita.
Að öðru leyti þakka ég málshefjanda fyrir þessa umræðu.